Vinnureglur starfsnefnda
Á aðalfundi hestamannafélagsins er skipað í starfsnefndir fyrir næsta 12 mánaða tímabil. Skipaðir eru 4-9 nefndarmenn í nefndir eftir umfangi hverrar nefndar. Einn formaður er fyrir hverri nefnd sem ber ábyrgð á að boða til funda og að nefndin skili því sem til er ætlast, einnig skal reynt að hafa a.m.k. einn stjórnarmann í nefnd.
Stórráðsfundur er haldinn með stjórn og formönnum nefnda í byrjun apríl hvers árs, þar sem m.a. formenn kynna dagskrá nefndar sinnar.
Ferða- og fræðslunefnd
· Nefndin skal halda fyrsta fund starfsársins á tímabilinu 1. - 31. mars það árið, skilyrði er að a.m.k. 50% nefndarmanna mæti á fundinn. Þar skal m.a. tekin fyrir áætlun síðustu nefndar um atburði nefndarinnar á viðkomandi starfsár.
· Ferða- og fræðslunefnd skal að lágmarki sjá um eftirfarandi á hverju starfsári:
Skemmtikvöld / -ferð (2015 föstudag fyrir hestaþing)
Vorreið ( 2015 Sólveig sér um)
Félagsferð (2015 Sifi og Palli sjá um)
Folaldasýningu (2015 Sindri og Dóra sjá um)
· Bent skal á að formaður hefur möguleika á að skipta niður á nefndarmenn utanumhaldi um viðburði þar sem ekki er þörf á að allir sjái um hvern viðburð í einu.
· Aðrar uppákomur eru sjálfsagðar og til bóta fyrir félagsstarfið, s.s. sumarreiðtúrar og fleiri námskeið ef þátttaka er fyrir hendi. Viðburðum ætti að raða niður á árið þannig að þeir séu þó ekki of þétt.
· Nefndin skal reka sig áfram á styrkjum og þátttökugjöldum fyrir hvern viðburð.
Reiðskóla- og Æskulýðsnefnd
· Nefndin skal halda fyrsta fund starfsársins á tímabilinu 1. - 31. mars það árið, skilyrði er að a.m.k. 50% nefndarmanna mæti á fundinn. Þar skal m.a. tekin fyrir áætlun síðustu nefndar um atburði nefndarinnar viðkomandi starfsár.
· Reiðskóla- og æskulýðsnefnd skal að lágmarki sjá um eftirfarandi á hverju starfsári:
Reiðnámskeið fyrir börnin
Vettvangsferð fyrir börnin
Umsjón með þátttöku á Hestafjöri Sunnlendinga
Reiðskóla Sindra
Æskulýðsmót á Sindravelli / kennsla fyrir mót.
Uppskeruhátíð/skemmtikvöld
· Bent skal á að formaður hefur möguleika á að skipta niður
á nefndarmenn utanumhaldi um viðburði þar sem ekki er þörf á að . allir sjái um hvern viðburð í einu.
· Aðrar uppákomur eru sjálfsagðar og til bóta fyrir barnastarfið, s.s. skemmtikvöld/miðdagur, reiðtúrar, o.fl. Viðburðum ætti að raða niður á árið þannig að þeir séu þó ekki of þétt.
· Nefndin skal reka sig áfram á styrkjum og þátttökugjöldum fyrir hvern viðburð. Sækja þarf árlega um styrk frá æskulýðssjóði USVS, Mýrdalshreppi, Rangárþingi og héraðsnefnda Rangárþings og V-Skaftafellssýslu.
Mótanefnd
· Nefndin skal halda fyrsta fund starfsársins á tímabilinu 1. - 31. mars það árið, skilyrði er að a.m.k. 50% nefndarmanna mæti á fundinn. Þar skal m.a. tekin fyrir áætlun síðustu nefndar um atburði nefndarinnar á viðkomandi starfsár.
· Mótanefnd skal að lágmarki sjá um eftirfarandi á hverju starfsári:
3 vetrarmót
4gangs/5gangs mót
Firmakeppni
Hestaþing Sindra
· Bent skal á að formaður hefur möguleika á að skipta niður viðburðum á nefndarmenn þar sem ekki er þörf á að allir sjái um hvern viðburð í einu. Mótanefnd skal fara eftir reglum hmf. Sindra um mót.
· Aðrar uppákomur eru sjálfsagðar og til bóta fyrir félagsstarfið.
· Mótanefnd skal sjá um að boða vallarnefnd á fund sinn til að ákveða þær framkvæmdir sem þarf að framkvæma fyrir mót ársins.
· Nefndin skal reka sig áfram á styrkjum og þátttökugjöldum fyrir hvern viðburð.
Vallarnefnd
· Vallarnefnd skal að lágmarki sjá um eftirfarandi á hverju starfsári:
1 Að Sindravöllur sé klár (valtaður) fyrir
keppnistímabilið.
2. Að hús séu heil og óskemmd.
3. Að girðingar haldi.
4. Frágangur fyrir veturinn ( Klósett, lausir hlutir úti við)
· Nefndin skal sitja fund með mótanefnd sem formaður mótanefndar boðar til.
· Nefndin skal rekin af sjóði hestamannafélagsins og raunhæft áætlað til verka ár hvert.
Reiðvega- og áningagerðisnefnd
· Nefndin skal halda fyrsta fund starfsársins á tímabilinu 1. - 31. mars það árið, fullnægjandi er þó að nefndin sé í tölvupóstsambandi. Tekið skal fyrir hvar skuli leggjast til framkvæmda þetta árið og sótt um styrk vegna verksins.
· Reiðveganefnd skal sjá um eftirfarandi á hverju starfsári:
* Að sækja styrki til Vegagerðarinnar, Mýrdalshrepps
og Rangárþings til reiðvegagerðar.
* Finna verktaka til verksins og nýta styrki til
reiðvegagerðar á þeim svæðum sem þykir brýnast að
leggja reiðvegi.
*Viðhald reiðvega.
· Nefndin skal alfarið rekin á styrkjum til reiðvegagerða.