Folaldasýning hmf-Sindra var haldin í Skálakoti í dag 14. nóv. 19 folöld voru skráð til leiks og mættu þau öll vel haldin og sæl í spariskapinu. Í hádegishléi var boðið uppá kjötsúpu og auðvitað kaffi og súkkulaði. Þá var einnig heiðruð heiðursverðlaunahryssa hmf-Sindra sem er Katla frá Ytri-Skógum Ae. 8,07. Til að hljóta þessa viðurkenningu skal hryssan eiga 2 sýnd afkvæmi, þar af annað í 1. verðlaun og vera lifandi sjálf. Í þessu tilfelli er annað afkvæmið Brenna frá Efstu-Grund Ae. 8,16 og hitt er sjálfur heimsmeistarinn í tölti hann Þokki frá Efstu-Grund. Sigurjón Sigurðsson og Sigríður Lóa Gissurardóttir á Efstu-Grund Stórhuga Sindramenn verðlauna auðvitað 5 efstu folöldin í hvorum flokki og svo er valið fegursta folald sýningar að mati dómara. Eigendur þessara folalda voru sendir klyfjaðir heim af allskyns verðmætum, svo sem bætiefnasteinum, bætiefnafötum, musli fóðurbætisblöndu, ábreiðum, Hrímnis höfuðleðri, folatollum undir 1. verðlauna stóðhesta, eignabikurum og farandgripum. Dómarar voru heiðursmennirnir Kristinn Guðnason í Árbæjarhjáleigu og Vignir Siggeirsson í Hemlu. Æviráðinn þulur á þessum sýningum er Skálakotsbóndinn Guðmundur Viðarsson og þökkum við þessum mönnum mikið vel fyrir daginn. Folöldin frá Fornusöndum fóru mikinn og að lokum fóru leikar þannig að Tryggvi E. Geirsson sem kom með 2 folöld hampaði efstu sætum í báðum flokkum og hryssan hans hún Una frá Fornusöndum var valin fegursta folald sýningar. Að lokum þökkum við öllum styrktaraðilum fyrir örlæti og jákvæð viðbrögð! Þeir eru eftirtaldir:
Karl R Guðmundsson úrsmiður Skálakot Sláturfélag Suðurlands Rúnar og Hulda hjá Hrímni Hrísdalshestar Hestar og Menn Baldvin og Þorvaldur
Folaldasýning Hmf-Sindra verður haldin í Skálakoti laugardaginn 14. nóv og byrjar stundvíslega kl 11. Tekið er við skráningum til kl 18 föstudaginn 13. nóv hjá Dóru á e-mail: dorajg@internet.is og í s: 895-5738 Skráningargjald á hvert folald er 1,000 kr. Vinsamlega leggið inn á reikning 0317-26-7622 kt: 540776-0169 og sendið staðfestingu á greiðslu til: dorajg@internet.is ATH Folald þarf að vera grunnskráð í WorldFeng og í eigu félagsmanns til að geta tekið þátt. Dómari verður Kristinn Guðnason Súpa og drykkjarföng á góðu verði í hléi.
Hér kemur ferðalýsing í stórum dráttum fyrir félagsferðina 14.-16. ágúst 2015. Föstudagurinn 14. ágúst: Hittumst kl. 10 á Hótel Fljótshlíð (Smáratún) og fólk kynnir sig. Riðið að Tumastöðum og áfram að Keldum. Stoppum á Keldum og fáum að skoða lýðveldisbæinn. Riðið þaðan niður Rangárvelli og farið yfir Fossvað á Eystri-Rangá. Hestarnir geymdir yfir nóttina á Velli og menn gista á Hótel Fljótshlíð í sumarbústöðum með heitum pottum. Laugardagurinn 15. ágúst: Keyrt að Velli oglagt af stað. Riðið niður Vallarkrók og áleiðis inn Fljótshlíð. Beygt niður hjá Lambey og endað á Hótel Fljótshlíð. Sunnudagurinn 15. ágúst: Gengið frá húsunum og farið heim
Ath. þetta er ekki rekstrarferð og hver teymir sína hesta. Hvor dagur er um 20 km. Muna að taka með sér sundföt þeir sem vilja nýta sér pottana Nokkur pláss laus
Við Sindramenn og konur megum vera stolt af árangri félaga okkar á Áhugamannamóti Íslands sem haldið var á Hellu um helgina. Á mótinu fékk Hjördís Rut Jónsdóttir hvorki meira né minna en reiðmennsku viðurkenningu frá Félagi tamningamanna! En hún hampaði fyrsta sæti í fjórgangi V5 með einkunina 6,67 á Háreki frá Hafsteinsstöðum í þeirra fyrstu keppni saman, einnig náði hún 4 sæti í tölti T7 á Straumi frá Írafossi með einkunina 6,50. Eiríkur Vilhelm Sigurðarson stóð sig einnig eins og hetja náði í B-úrslit í báðum þeim greinum sem hann keppti í og reið sig upp í A-úrslit í tölti T7 þar sem hann náði 6. sæti með einkunina 6,08 á Hátíð frá Árbæjarhjáleigu II. Hermann Árnason átti einnig stórsýningu í 100 m skeiði á Heggi frá Hvannstóði en þeir náðu tímanum 8,14 og hrepptu 2. sæti. Það sem þó var eftirtektarverðast var það að Hermann er handleggsbrotinn og lagði klárinn þannig 2 glæsilega spretti, þessi sýning var enn umfjöllunaratriði á sunnudaginn eftir mót og þótti verulega magnað. Sú sem þetta ritar náði einnig góðum árangri, sínum besta hingað til á Þoku frá Þjóðólfshaga sem fékk það verkefni að ríða 3 úrslit sama daginn, niðurstaðan varð 5. sæti í tölti T3 með einkunina 6,78 og 2. sæti í fjórgangi V2 með einkunina 6,90. Suma daga er enn meira gaman að vera Sindrafélagsmaður!
Kæru félagar Hestamannafélagið Sindri hefur rétt á að senda 8 hesta í hverjum flokki á Fjórðungsmót Austurlands 2015. Fjórðungsmótið verður haldið dagana 2.-5. júlí nk. á Stekkhólma rétt hjá Egilsstöðum. Forkeppnin á Hestaþinginu okkar um síðustu helgi var úrtaka fyrir fjórðungsmótið og eiga því 8 efstu hestar í hverjum flokki rétt á þátttöku á fjórðungsmótinu. Að auki eiga hross í eigum félagsmanna sem náð hafa hærri einkunn en 8,20 á öðrum mótum í vor og keppt hafa í nafni félagsins rétt á þátttöku. Á fjórðungsmótinu verður einnig opin töltkeppni þar sem keppt er í opnum flokki, áhugamannaflokki, ungmenna-, unglinga- og barnaflokki. Þar að auki verður kynbótasýning á mótinu og læt ég fylgja hér frétt um hana. Þeir sem hafa áhuga á að bruna á fjórðungsmót eru beðnir að hafa samband við mig á isbud@simnet.is
Það er ekki hægt að segja annað en að Hermann Árnason hafi gert góða ferð á kappreiðar hjá okkur. Hann sigraði alla flokka sem hann tók þátt í og fór heim með ágætis vasapening að launum.
100m fljótandi skeið
1.
Knapi:
Hermann Árnason
Heggur frá Hvannstóði, Brúnn/milli-einlitt , 14 vetra
F:
Toppur frá Eyjólfsstöðum
M:
Embla frá Hvannstóði
Eig:
Hermann Árnason
2.
Knapi:
Jón Óskar Jóhannesson
Ásadís frá Áskoti, Rauður/bleik-skjótt , 10 vetra
F:
Álfasteinn frá Selfossi
M:
Fiðla frá Áskoti
Eig:
Auður Rún Jakobsdóttir
3.
Knapi:
Þorsteinn Björn Einarsson
Erpur frá Efri-Gróf, Jarpur/milli-stjörnótt , 10 vetra
F:
Vísir frá Syðri-Gróf 1
M:
Nóra frá Efri-Gróf
Eig:
Helgi Vigfús Valgeirsson
150m skeið
1.
Knapi:
Hermann Árnason
Heggur frá Hvannstóði, Brúnn/milli-einlitt , 14 vetra
F:
Toppur frá Eyjólfsstöðum
M:
Embla frá Hvannstóði
Eig:
Hermann Árnason
2.
Knapi:
Hjördís Rut Jónsdóttir
Prúður frá Kotströnd, Jarpur/milli-stjörnótt , 24 vetra
F:
Platon frá Sauðárkróki
M:
Þöll frá Hveragerði
Eig:
Anna Sigurðardóttir
300m brokk
1.
Knapi:
Heiðar Þór Sigurjónsson
Þyrill frá Hvassafelli, Rauður/bleik-einlitt , 25 vetra
F:
Sörli frá Stykkishólmi
M:
Busla frá Hvassafelli
Eig:
Sigurjón Sigurðsson
2.
Knapi:
Árni Gunnarsson
Dalvör frá Ey II, Jarpur/milli-skjótt , 11 vetra
F:
Baugur frá Víðinesi 2
M:
Jörp frá Ey II
Eig:
Árni Gunnarsson, Guðlaug Þorvaldsdóttir
300m stökk
1.
Knapi:
Hermann Árnason
Torfi frá Eyjarhólum, Jarpur/rauð-stjörnótt , 8 vetra
F:
Hrókur frá Fellskoti
M:
Þrá frá Eyjarhólum
Eig:
Hermann Árnason
2.
Knapi:
Heiðar Þór Sigurjónsson
Tarsan frá Holtsmúla, Leirljós/Hvítur/milli-sk..., 11 vetra
F:
Víðir frá Sæfelli
M:
Lísa frá Litla-Hóli
Eig:
Heiðar Þór Sigurjónsson
3.
Knapi:
Kristín Erla Benediktsdóttir
Bjarmi frá Sólheimakoti, Jarpur/milli-skjótt , 10 vetra
Boðið er uppá 100m fljótandi skeið, 150m - og 250m skeið, 300m brokk og 300m stökk. Skráningargjöld eru aðeins 500 kr á hest og peningaverðlaun í boði fyrir sigur. Keppnisgrein mun þó falla niður ef þátttakendur verða færri en 3. Skráningu á kappreiðar lýkur fimmtudag 11. júní.
Ath það verður ekki tímatökubúnaður á staðnum.
Laugardagur: Hestaþing Sindra
Keppt verður í: pollar, börn, unglingar, ungmenni, A - og B - flokkur gæðinga. Skráningargjöld í alla flokka eru 3500 kr nema barna- og unglinga-, þau greiða 500 kr og pollar greiða ekkert.
Skráningu á Hestaþing lýkur þriðjudag 9. júní.
Um kvöldið verður svo Ursustöltið þar sem keppt er í T1 og sigurvegarinn hlýtur að launum 100.000 krónur! Skráningargjöld eru 3500 kr og lýkur skráningu miðvikudag 10. júní
Skráning í allar greinar fer fram hér: http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Ath að þegar á að skrá í pollaflokk er valin keppnisgrein Annað þar sem ekki er boðið uppá pollaflokk í mótafeng. Skráning er ekki tekin gild nema staðfesting á greiðslu berist á dorajg@internet.is. Setja skal pöntunarnúmerið sem tilvísun
Ef einhver vandræði eru með skráningu sendið tölvupóst á dorajg@internet.is.
Reiðskóli Sindra í Vík verður dagana 1. - 6. júní n.k. Reiðskólinn er fyrir alla krakka fædda árið 2009 og eldri, einnig verður fullorðinshópur ef næg þátttaka næst.
Verð er kr 7.500.- en systkynaafsláttur er kr 2000.- Upplýsingar og skráning er hjá Ástu Öldu á e-mailið: skasta15@gmail.com eða í síma 848-1861.
Reiðskóli Sindra í Skálakoti verður dagana 1. - 6. júní n.k. Skráning og allar upplýsingar um hann gefur Mummi á e-mailinu info@skalakot.com
Eitthvað
er skipulagið að fara í vaskinn hjá formanni en samkvæmt bréfi sem sent var í
póst á fimmtudaginn átti að vera opinn félagsfundur í Skálakoti í kvöld kl
20:00, af honum verður hinsvegar ekki þar sem í millitíðinni læddist inn
frídagur sem varð til þess að pósturinn berst ekki félögum fyrr en í fyrsta
lagi á morgun, við verðum því að fresta fundinum og mun ég láta vita síðar
hvenær fundurinn verður. Í sama bréfi er auglýstur fundur annað kvöld á
Ströndinni kl 20:00 en vegna anna félagsmanna í sauðburði og fleiru höfum við
ákveðið að fresta þeim fundi einnig til þess að geta átt góðan fund þegar tekur
að róast hjá flestum.