Folaldasýning hmf-Sindra var haldin í Skálakoti í dag 14. nóv.
19 folöld voru skráð til leiks og mættu þau öll vel haldin og sæl í spariskapinu.
Í hádegishléi var boðið uppá kjötsúpu og auðvitað kaffi og súkkulaði. Þá var einnig heiðruð heiðursverðlaunahryssa hmf-Sindra sem er Katla frá Ytri-Skógum Ae. 8,07. Til að hljóta þessa viðurkenningu skal hryssan eiga 2 sýnd afkvæmi, þar af annað í 1. verðlaun og vera lifandi sjálf. Í þessu tilfelli er annað afkvæmið Brenna frá Efstu-Grund Ae. 8,16 og hitt er sjálfur heimsmeistarinn í tölti hann Þokki frá Efstu-Grund.

Sigurjón Sigurðsson og Sigríður Lóa Gissurardóttir á Efstu-Grund
Stórhuga Sindramenn verðlauna auðvitað 5 efstu folöldin í hvorum flokki og svo er valið fegursta folald sýningar að mati dómara.
Eigendur þessara folalda voru sendir klyfjaðir heim af allskyns verðmætum, svo sem bætiefnasteinum, bætiefnafötum, musli fóðurbætisblöndu, ábreiðum, Hrímnis höfuðleðri, folatollum undir 1. verðlauna stóðhesta, eignabikurum og farandgripum.
Dómarar voru heiðursmennirnir Kristinn Guðnason í Árbæjarhjáleigu og Vignir Siggeirsson í Hemlu. Æviráðinn þulur á þessum sýningum er Skálakotsbóndinn Guðmundur Viðarsson og þökkum við þessum mönnum mikið vel fyrir daginn.
Folöldin frá Fornusöndum fóru mikinn og að lokum fóru leikar þannig að Tryggvi E. Geirsson sem kom með 2 folöld hampaði efstu sætum í báðum flokkum og hryssan hans hún Una frá Fornusöndum var valin fegursta folald sýningar.
Að lokum þökkum við öllum styrktaraðilum fyrir örlæti og jákvæð viðbrögð!
Þeir eru eftirtaldir:
Karl R Guðmundsson úrsmiður
Skálakot
Sláturfélag Suðurlands
Rúnar og Hulda hjá Hrímni
Hrísdalshestar
Hestar og Menn
Baldvin og Þorvaldur

Sigurvegarar í flokki merfolalda
| Merfolöld |
| 1. | IS2015284174 - Una frá Fornusöndum |
| Jörp |
| F: | Ölnir frá Akranesi - IS2009135006 |
| M: | Svarta-Nótt frá Fornusöndum - IS2001284173 |
| Rækt/Eig: Tryggvi E. Geirsson |
| 2. | IS2015285753 - Salka frá Eyjarhólum |
| Brún |
| F: | Stefnir fá Eyjarhólum - IS2009185752 |
| M: | Þrá frá Eyjarhólum - IS2000285753 |
| Rækt/Eig: Þorlákur S. Björns/Halldóra Gylfad |
| 3. | IS2015284055 - Dagný frá Hlíð |
| Moldótt/gul |
| F: | Óðinn frá Eystra-Fróðholti - IS2004186183 |
| M: | Árdís frá Stóru-Heiði - IS2004285600 |
| Rækt/Eig: Hermann Árnason |
| 4. | IS2015281051 - Minning frá Uxahrygg |
| Draugmoldótt |
| F: | Glóðafeykir frá Halakoti - IS2003182454 |
| M: | Fluga frá Uxahrygg - IS1996281054 |
| Rækt./Eig: Samúel Örn Erlingsson |
| 5. | IS2015284157 - Sandra frá Skálakoti |
| Brún |
| F: | Ársæll frá Hemlu - IS2004180601 |
| M: | Spurning frá Árbæjarhjáleigu II - IS2000286990 |
| Rækt/Eig: Guðmundur Viðarsson |

Sigurvegarar í flokki hestfolalda
| Hestfolöld |
| 1. | IS2015184175 - Taktur frá Fornusöndum |
| Brúnn |
| F: | Glæsir frá Fornusöndum - IS2009184174 |
| M: | Hylling frá Hofi I - IS1998277793 |
| Rækt./Eig: Tryggvi E. Geirsson |
| 2. | IS2015185528 - Hrappur frá Suður-Fossi |
| Brúnn |
| F: | Grunur frá Oddhóli - IS1996186060 |
| M: | Skerpla frá Tungufelli - IS1996235790 |
| Rækt./Eig: Hjördís Rut Jóns./Ingi Már Björns |
| 3. | IS2015185525 - Nn frá Vík í Mýrdal |
| Rauður |
| F: | Brjánn frá Hvolsvelli - IS2012184977 |
| M: | Tinna frá Núpakoti - IS1996284082 |
| Rækt./Eig: Árni Gunn/ Guðlaug Þorvalds |
| 4. | IS2015185751 - Djákni frá Eyjarhólum |
| Rauðstjörnóttur |
| F: | Þóroddur frá Þóroddsstöðum - IS1999188801 |
| M: | Perla frá Eyjarhólum - IS2000285751 |
| Rækt./Eig: Þorlákur S Björns/Halldóra Gylfad |
| 5. | IS2015184051 - Váli frá Hlíð |
| Móbrúnn |
| F: | Óðinn frá Eystra-Fróðholti - IS2004186183 |
| M: | Vala frá Laugardælum - IS1999287321 |
| Rækt./Eig: Hermann Árnason |