Fjórðungsmót Vesturlands verður
haldið í Borgarnesi 28. júní til 2. júní 2017. Í gæðingakeppni eiga
keppnisrétt félagar í hestamannafélögum á Vesturlandi, á Vestfjörðum, í
Húnavatnssýslum og í Skagafirði.
Á mótinu verður einnig keppt í
þessum greinum og er þar um opna keppni að ræða þ.e. allir geta tekið þar þátt:
1. Tölt opinn flokkur
2. Tölt 17 ára og yngri
3. 100 metra fljótandi skeið
4. 150 metra skeið
5. 250 metra skeið
·
Skráningargjald í tölt
er 7.000 kr. á hvern hest en 3.500 kr. á hvern hest í skeiðgreinum
·
Skráning í þessar
greinar hefst sunnudaginn 11. júní og lýkur á miðnætti sunnudaginn 18. júní og
fer hún fram í gegnum SportFeng
·
SportFengsnúmer mótsins
er IS2017LM0132.
·
Skráningargjöld skal
greiða á reikning:
- kt. 450405-2050
- banki: 0326-26-002265
- kvittun fyrir greiðslu
skráningargjalda skal send á netfangið thoing@centrum.is Mjög áríðandi að kvittun sé send á
þetta netfang
- Í lok
skráningarferlisins koma fram upplýsingar um greiðslu skráningargjalda.
Peningaverðlaun verða fyrir fyrsta
sæti í tölti opnum flokki og 100 m fljótandi skeiði.