Ágætu Sindrafélagar,
Við ætlum að fara í hestaskemmtiferð helgina 14.-16. ágúst 2015.
Ágætt væri ef hver og einn væri með 2 hesta (ekki rekstur).
Riðið verður frá Hótel Fljótshlíð föstudaginn 14. um kl. 12.
Riðnir verða ca. 20 km. Fólk gistir á Hótel Fljótshlíð, en hestar skildir eftir í haga. Á laugardeginum verða hestar sóttir og riðið að Hótel Fjótshlíð, ca 20 km. Gist þar. Á sunnudeginum er húsunum skilað fyrir kl. 12 og farið heim.
Búið er að taka frá 3 sumarhús
Aldurstakmark er 13 ára
Áhugasamir hafið samband í síma 898-1809 (Ása)
Ferðanefnd
Sifi, Páll Heiðar og Ása