
Páskabingó Berlínarfara fór fram í kvöld og gekk framar vonum. Petra og Sigríður Ingibjörg stýrðu bingóinu af röggsemi og þær Elín, Ólöf og Þuríður seldu bingóspjöldin með mikilli sölukænsku, alls söfnuðust kr 64.011.- sem renna beint í sjóð Berlínarfara. Um 100 manns mættu til þess að spila um girnileg eggin og var því vinningshlutfallið í lægra lagi, þó fengu allir 12 ára og yngri, sem ekki höfðu fengið bingó allt kvöldið, egg með sér heim í sárabætur.
Gleðilega páska
Berlínarfarar