Hestamannafélagið Sindri


19.06.2012 12:11

Klár í keppni

Heilbrigðisskoðun keppnishesta á Landsmóti 2012

"Klár í keppni"

Öll hross sem keppa í A fl. gæðinga, B fl. gæðinga,ungmennaflokki, tölti og skeiði á LM 2012 skulu undirgangast dýralæknisskoðun þar sem metið er hvort þau séu hæf til keppni.
Keppendur í öðrum greinum geta að eigin ósk mætt með hross sín í skoðun.
Skoðunin skal fara fram 2 - 24 tímum fyrir hverja keppnisgrein í undankeppni. Fyrir milliriðla og úrslit fer skoðunin fram einum til tveimur tímum fyrir keppni.
Ábyrgðardýralæknir mótsins hefur yfirumsjón með þessum skoðunum og öðru sem snertir
dýravernd á mótinu. Hann skal ævinlega kallaður til ef vafi leikur á hvort hestur sé hæfur til
keppni og veita dómurum ráðgjöf eftir þörfum.

Heilbrigðisskoðunin felur í sér eftirfarandi atriði:

1.  Skoðun á almennu ástandi (holdafari, eitlum, öndun auk líkamshita og hjartahljóða ef
ástæða er til)

2.  Fætur þreifaðir og heltiskoðun (hreyfingar á feti og brokki á hörðu undirlagi)

3.  Skoðun á munni (fremsti hluti munnsins án deyfingar)

Ef einhver eftirfarandi atriða finnast er hestur dæmdur "óhæfur til keppni" og fær ekki að fara inn á keppnisvöllinn:

1.  Horaður (undir 2,5 í holdastigun), hiti, óeðlileg öndun og hjartahljóð, bólgnir eitlar

2.  Helti, bólga í sinum og liðum, dýpri sár, aumir hófar

3.  Umfangsmikil, djúp eða krónísk sár í munni. Beinhimnubólga og/eða sár yfir kjálkabeini á
tannlausa bilinu.

4.  Annað sem að mati dýralæknis mótsins gerir hross óhæft til keppni

Ákvörðun um að hestur sé "óhæfur til keppni" er tekin af ábyrgðardýralækni mótsins. Hestur
sem hefur verið dæmdur "óhæfur til keppni" í einni grein má ekki keppa í neinu öðru né koma fram á nokkurri sýningu á sama móti.

Tímasetningar heilbrigðisskoðana:

Sunnudagur 24. júní 11.00 - 21.00
Mánudagur 25. júní 07.00 - 21.00
Þriðjudagur 26. júní 07.00 - 21.00
Miðvikudagur 27. júní 07.00 - 17.00
Fimmtudagur 28. júní 08.00 - 17.00
Föstudagur 29. júní 12.00 - 15.00
Laugardagur 30. júní 17.00 - 20.00
Sunnudagur 1. júlí 09.00 - 14.00

Frekari kynning verður á knapafundi sunnudaginn 24.júní.  


Nafn:

Vefstjóri: Vilborg Smáradóttir

Um:

Minningarsjóður um Óskar Sigurð Þorsteinsson. Hægt er að styrkja sjóðinn með kaupum á minningarkortum að lágmarki 1000 kr hjá: Hjördísi Rut; sudur-foss@simnet.is s: 861-0294, Vilborgu; isbud@simnet.is s: 867-1486, Ástu Öldu; skasta15@gmail.com s: 848-1861. Sjóðurinn styrkir æskulýðsstarf Hmf Sindra.

Kennitala:

540776-0169

Bankanúmer:

0317-26-100622

Tenglar

Eldra efni


Flettingar í dag: 1453
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 109
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 52279
Samtals gestir: 1753
Tölur uppfærðar: 25.4.2026 06:53:25