Hér fyrir neðar eru komnir inn ráslistar fyrir firmakeppni sem haldin verður á Sindravelli á morgun, mánudaginn 25. apríl. Byrjað verður stundvíslega kl 14:00
Keppendur eru hvattir til að mæta tímanlega á knapafund í Sindrabúð kl. 13:30 þar sem farið verður yfir keppnisfyrirkomulag.
Firmakeppnin er dæmd sem gæðingakeppni og munu pollar sýna brokk/tölt, börn brokk/tölt með hraðamun, unglingar hægt tölt, brokk og yfirferðagang (brokk/tölt), Unghross frjálsa ferð á brokki og tölti og kvenna og karlaflokkur sýna hægt tölt, brokk og yfirferðartölt.
Með kveðju
Mótanefnd