Þá er kominn tími til að bæta meira við þekkingu okkar og hæfni í reiðmennskunni
Fyrirhugað er annað námskeið hjá hinum alkunna Magga Lár með áherslu á töltþjálfun.
Hin námskeiðin sem haldin hafa verið voru virkilega fróðleg og skemmtileg
og það er takmarkaður fjöldi þátttakenda líkt og áður.
Svo það er um að gera að skrá sig í hvelli og vera með í fjörinu.
Þetta verða þrjú skipti á tveggja vikna fresti, við byrjum klukkan 13:00 stundvíslega
og verðum að eitthvað fram eftir degi.
Greiðslufyrirkomulag er það sama og hefur verið með greiðslu inn á reikning Hestamannafélagsins Sindra sem gefinn er upp í glugganum hér til hægri á síðunni.
Athugið að það þarf að greiða allt gjaldið fyrir fyrsta dag námskeiðs !
Fyrsti dagur er fimmtudaginn 4. febrúar
Annar dagur er fimmtudaginn 18. febrúar
Lokadagur er fimmtudaginn 4. mars
Námskeiðið verður haldið í Eyjarhólum og ef þannig stendur á er hægt að koma með reiðskjótann kvöldið áður og geyma hann þar yfir nótt endurgjaldslaust.
Þátttakendur þurfa að koma með hest, reiðtygi, hjálm, písk og góða skapið með sér.
Skráning fer fram hjá Hjördísi Rut í S: 861-0294 eða á sudur-foss@simnet.is
og Árna Gunnarssyni í S: 893-9438
Kær kveðja
Ferða- og fræðslunefnd