Ég fékk fékk eftirfarandi bréf sent frá Hmf Fáki og ákvað bara að setja það hér inn sem auglýsingu fyrir Íslandsmót fullorðinna.
Íslandsmót í hestaíþróttum fyrir fullorðna verður haldið 24. -27. júlí í Víðidal í Reykjavík. Framkvæmdaraðili mótsins er hestamannafélagið Fákur. Hvert hestamannafélag fyrir sig sér um skráningu fyrir sína félagsmenn (auglýsir skráningartíma, tekur við skráningum og skráningargjaldi og skráir í Kappa) og einnig sér hestamannafélagið um greiðslu skráningargjalda til framkvæmdaraðila. Skráningargjald er kr. 4.000 fyrir hverja skráningu. Hestamannafélögin skrá sína keppendur í Kappa en búið verður að stofna mótið af framkvæmdaraðila. Lokafrestur fyrir hestamannafélögin til að skila inn skráningum fyrir sína félagsmenn í Kappa er á miðnætti mánudagsins 14. júlí.
Mótið hefst fimmtudaginn 24. júlí og lýkur sunnudaginn 27. júlí. Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.
í ljósi þessa þá langar mig að byðja ykkur kæru Sindrafélagar sem ætlið að taka þátt í þessu móti að senda mér upplýsingar um IS númer og Kt knapa og einnig grein sem þið takið þátt í og líka upp á hvaða hönd þið ætlið að byrja. Í síðasta lagi sunnudagskvöldið 13. júlí svo ég hafi tök á að koma þessu inn og greiða skráningu. Við munum rukka ykkur um skráningargjöldin og þarf að vera búið að greiða þau í síðasta lagi mánudaginn 14. júlí inn á reikning 0317-26-100622. Kt: 540776-0169. kr. 4000.
EKKI VERÐUR SKRÁÐ NEMA VIÐKOMANDI SÉ BÚINN AÐ GREIÐA SKRÁNINGARGJÖLDIN.
Formaður.