Vetrarmót
Vetrarmót Sindra skulu vera þrjú hvern vetur og eru opin öllum til þátttöku. Fullgildir félagsmenn hestamannafélagsins Sindra safna stigum fyrir 1.- 6. sæti á hverju móti sem metið er til stigakeppni þessara þriggja móta.
1.vetrarmót skal vera um og eftir síðustu helgi í janúar en mótin skulu svo haldin með u.þ.b. 3 vikna millibili.
Ráðinn skal dómari til að dæma hvert mót.
Keppnisfyrirkomulag:
Keppnisröðun flokka er eftirfarandi:
Pollar, börn, unglingar, opinn flokkur minna vanir og að síðustu opinn flokkur meira vanir.
Keppt er á íþróttakeppnisvellinum.
Pollaflokkur 9 ára og yngri: Riðið er frjálst 1 til 2 hringir eftir þul, allir keppendur eru inni á vellinum í einu og er forkeppnin jafnframt úrslitin. Strax eftir úrslit flokksins er pollum veitt viðurkenning fyrir þátttöku en þeim ekki raðað í sæti.
Barnaflokkur 10 til 13 ára: Forkeppni: 3 keppendur eru inni á vellinum í einu, riðið er eftir þul. Sýna skal 1 til 2 hringi hægt tölt á vinstri hönd og svo fegurðartölt a.m.k. 2 hringir á vinstri hönd einnig.
Úrslit (c.a.10 mínútum eftir forkeppni barnaflokks): 6 keppendur ríða til úrslita, riðið er eftir þul. Sýna skal 1 til 2 hringi hægt tölt á vinstri hönd og svo fegurðartölt a.m.k. 2 hringi á hægri hönd.
Gefnar eru einkunnir, raðað í sæti eftir því og er verðlaunaafhending strax í kjölfar úrslitanna þar sem veittar eru medalíur fyrir 1.-3. sætið, auk þátttökuviðurkenningar fyrir aðra keppendur.
Unglingaflokkur 14 til 17 ára: Forkeppni: 3 keppendur eru inni á vellinum í einu, riðið er eftir þul. Sýna skal 1 til 2 hringi hægt tölt á vinstri hönd og svo fegurðartölt a.m.k. 2 hringir á vinstri hönd einnig.
Úrslit (c.a.10 mínútum eftir forkeppni unglingaflokks): 6 keppendur ríða til úrslita, riðið er eftir þul. Sýna skal 1 til 2 hringi hægt tölt á vinstri hönd og svo fegurðartölt a.m.k. 2 hringi á hægri hönd.
Gefnar eru einkunnir, raðað í sæti eftir því og er verðlaunaafhending strax í kjölfar úrslitanna þar sem veittar eru medalíur fyrir 1.-3. sætið.
Opinn flokkur minna og meira vanir: Forkeppni: 3 keppendur eru inni á vellinum í einu, riðið er eftir þul. Sýna skal 1 til 2 hringi hægt tölt á vinstri hönd og svo fegurðartölt a.m.k. 2 hringir á vinstri hönd einnig.
Úrslit (c.a.10 mínútum eftir forkeppni flokksins): 6 keppendur ríða til úrslita, riðið er eftir þul. Sýna skal 1 til 2 hringi hægt tölt á vinstri hönd og svo fegurðartölt a.m.k. 2 hringi á hægri hönd.
Gefnar eru einkunnir, raðað í sæti eftir því og er verðlaunaafhending strax í kjölfar úrslitann þar sem veittar eru medalíur fyrir 1.-3. sætið.
Séu þátttakendur í flokkunum 3 eða færri er forkeppni flokksins sleppt og úrslit riðin strax.
Mótsstjóri getur ákveðið að víxla forkeppni flokkanna minna og meira vanir vegna fjölda hrossa hjá einum knapa í öðrum hvorum flokknum, enda verði það þá tilkynnt í byrjun móts og á rásröð á heimasíðu.
Þátttökugjöld eru kr 1.500.- á knapa í opnum flokkum.
Æskilegt er að leita styrkja vegna kostnaðar á dómgæslu.
Stigakeppni:
Knapar sem eru fullgildir félagsmenn hestamannafélagsins Sindra safna stigum fyrir 1.- 6. sæti og er stigagjöf eftirfarandi:
1. sæti = 12 stig
2. sæti = 10 stig
3. sæti = 8 stig
4. sæti = 7 stig
5. sæti = 6 stig
6. sæti = 5 stig
Eftir úrslit hvers flokks á 3. vetrarmóti eru tilkynnt úrslit stigakeppni og veitt verðlaun fyrir, medalíur fyrir 1.- 3. sætið auk eignabikara fyrir 1. sætið í hverjum flokki.
Barn eða unglingur sem keppir upp fyrir sig um flokk safnar einungis stigum í sínum flokki, viðkomandi má ekki keppa á sama hrossinu í báðum flokkum.
Þátttaka í opnum flokkum:
Þátttaka í opnum flokkum miðast ávallt við getu knapans en ekki hestsins. Val knapa um að staðsetja sig í minna- eða meira vanir er hans huglæga mat en er eftirfarandi þó til viðmiðunar:
Minna vanir teljast áhugamenn, þeir sem ekki hafa verið að taka að jafnaði þátt á öðrum mótum en mótum félagsins og eru lítið keppnisvanir. Knapar sem þó hafa tekið þátt á mótum félagsins samfellt í áraraðir teljast til keppnisvanari. Knapi sem hefur tekið þátt í flokki meira vanir getur ekki tekið þátt í flokki minna vanir.
Meira vanir teljast áhugamenn og atvinnumenn sem að jafnaði hafa verið að taka þátt á öðrum mótum en mótum félagsins og eru orðnir nokkuð keppnisvanir.
Firmakeppni
Firmakeppni Sindra skal haldin um og eftir
miðjan apríl ár hvert á Sindravelli.
Firmakeppni er styrkt af fyrirtækjum og einstaklingum sem kaupa firma hjá
mótanefnd sem safnar að lágmarki 100 firma fyrir keppnina.
Firmakeppni er opin öllum, en hvert hross hefur einungis þátttökurétt í einum
flokki mótsins.
Dómari keppninnar þarf ekki að vera lærður dómari.
Dæmt er eftir innsæi og persónulegri skoðun dómara. Þó skal hafa í huga að gróf
reiðmennska er ekki liðin.
Keppnisröð flokka er eftirfarandi:
Pollar, börn, unglingar, unghross, konur,
karlar og að síðustu unghross (4-5 vetra).
Möguleiki er að samtvinna kvenna og karla flokka séu einhverjir knapar með
fleiri en eitt hross.
Pollaflokkur ríður frjálst eftir getu hvers og eins.
Í öðrum flokkum er riðin forkeppni þar sem 3 eru inni á vellinum í einu og er
riðinn frjáls gangur að lágmarki 3 hringir, hver keppandi skal þó sýna að
lágmarki 2 gangtegundir eða hraðabreytingu á gangtegund. Eftir keppni í
hringnum skal sýna 1 ferð á beinni braut.
Riðin eru úrslit 5 efstu knapa eftir forkeppni, öllum þátttakendum skal raðað í
sæti.
Veitt eru verðlaun, medalíur fyrir 1.-3. sæti í hverjum flokki auk
þátttökuviðurkenninga í polla og barnaflokkum.
Fyrirtæki sem styrkir viðkomandi knapa fær einnig medalíu lendi knapinn í 1.-3.
sæti.
Hestaþing
Hestaþing Hmf-Sindra skal haldið á laugardegi og sunnudegi um miðjan júní ár hvert. Miðað skal við það að forkeppni á laugardegi sé úrtaka fyrir Landsmót það ár sem LH ber upp á.
Varðandi úrtöku þarf lágmarks einkunn hests að vera að 8,10 í heildina úr forkeppninni til þess að hann vinni sér inn rétt til þátttöku á landsmóti. Mótanefnd sér um skipulagningu mótsins og kýs mótsstjóra sem er ábyrgur fyrir því að þingið fari fram eftir settum reglum, fylgi tímaramma sem settur hefur verið upp í dagskrá og tekur ákvarðanir í samstarfi við mótanefnd um breytingar á mótinu ef þurfa þykir.
Á mótinu skulu dæma 3 fullgildir gæðinga- og íþróttadómarar.
Keppnisröð er eftirfarandi:
Laugardagur
Gæðingakeppni þar sem keppt er eftir gæðingakeppnisreglum LH, forkeppni B-flokks, fyrir mótssetningu og hópreið.
Æskilegt er að fá upphitunarhross í braut fyrir dóma forkeppninnar.
Eftir mótssetningu er keppt til úrslita í pollaflokki þar á eftir forkeppni í barna-, unglinga-, ungmenna- og A-flokki.
Í forkeppni er einungis 1 keppandi inni á vellinum í einu, í pollaflokki eru 3- 5 börn inni á vellinum í einu, fer eftir þátttöku hvert sinn.
Þátttökurétt í gæðingakeppni polla-, barna-, unglinga-, og ungmennaflokks hafa einungis fullgildir og skuldlausir félagar hestamannafélagsins Sindra, aðrir geta með vilyrði mótsstjóra keppt sem gestir en hafa ekki rétt á að veita verðlaunum móttöku.
Þátttökurétt í gæðingakeppni A- og B- flokks gæðinga hafa einungis hross sem hafa verið í eigu fullgildra, skuldlausra félagsmanna að lágmarki frá því fyrir 1. maí sama ár.
Skráningargjöld eru í Ungmennaflokki, A- og B-flokki.
Skráning skal vera opin þar til 5 dögum fyrir keppni.
Töltkeppni þar sem keppt er eftir íþróttakeppnisreglum LH, í dagskrá á eftir gæðingakeppni.
Í forkeppni er 1 keppandi inni á vellinum í einu en 5 stigahæstu keppendur keppa til úrslita.
Sé fjöldi keppenda í heild 20 eða fleiri er mótsstjóra heimilt að halda sérstaka forkeppni þar sem 2 eru inni á vellinum í einu, þá skal einnig halda B-úrslit auk A-úrslitanna.
Töltkeppni er opin keppni í fyrsta flokk en stigahæsti félagsmaður veitir farandbikar töltkeppninnar móttöku.
Skráningargjöld eru í tölti en skráning skal vera opin þar til 1 klst áður en keppni hefst.
Fljótandi 100m skeið eftir töltkeppni.
Allar kappreiðar eru opnar en félagsmaður með hraðasta tíma í hverri grein veitir farandbikar móttöku.
Skráningargjöld eru í kappreiðum og eru skráningar opnar þar til 1 klst áður en keppni hefst í hverri grein.
Sunnudagur
Úrslit í gæðingakeppni, B-flokki, barna-, unglinga-, ungmenna- og A-flokki Veitt eru verðlaun fyrir 1-5 sæti eftir úrslit í hverjum flokki og afhentur farandbikar.
Eftir úrslit í gæðingakeppni eru kappreiðar í eftirfarandi röð:
150 m skeið, 250 m skeið, 300 m brokk og að síðustu 300 m stökk.
Allar kappreiðar eru opnar en félagsmaður með hraðasta tíma í hverri grein veitir farandbikar móttöku.
Skráningargjöld eru í kappreiðum og eru skráningar opnar þar til 1 klst áður en keppni hefst í hverri grein.