Það stefnir í virkilega skemmtilegt
kvöld á Skötukvöldi Rangárbakka, fjölmennum og höfum gaman.
Skötukvöld á Hellu 2. desember
2016.
Kl. 19.30 Húsið opnar, Baldvin Elís Arason spilar á harmonikku.
Kl. 20.00 Borðhald; Skata, saltfiskur, plokkfiskur, kartöflur, rófur og hamsatólg.
Eftirréttur; Ábrystir
Kl. 21.00 Karen Dís Guðmarsdóttir syngur og spilar
á gítar.
Kl. 21.15 Erlendur Árnason, eftirherma og gamanmál.
Kl. 21.45 Ræðumaður kvöldsins; Guðni Ágústsson fv.
landbúnaðarráðherra.
Kl. 23.00 Happdrætti; Veglegri vinningar en nokkru
sinni fyrr, hótel gistingar, kvöldverðir á veitingastöðum, folatollar og m. fl.
Allur
hagnaður af kvöldinu rennur til tækjakaupa Fimleikadeildar Ungmennafélagsins
Heklu og Uppbygginar Rangárbakka.
Við
hvetjum ykkur öll til að mæta og taka með ykkur gesti til að borða þjóðlegan
mat og styrkja góð málefni í leiðinni.
Forsala aðgöngumiða er í umsjá
Fimleikadeildar Ungmennafélagsins Heklu. Upplýsingar gefur Hulda Karlsdóttir í
síma 6951708.
Sjáumst á Skötuveislu 2. desember n.k.