Fyrsta vetrarmót Hestamannafélagsins Sindra verður haldið laugardaginn 2. febrúar kl 12:00 (ath breytta tímasetningu) á Sindravelli.
Keppt verður í: Pollaflokki, barnaflokki, unglingar, minna vanir og meira vanir.
Á vetrarmóti skal hafa eftirfarandi í huga.
Pollaflokkur; frjáls aðferð sem stjórnað er að af þul.
Börn og unglingar: Hægt tölt og yfirferðar tölt. Stjórnað af þul
Meira vanir og minna vanir: hægt tölt, yfirferðartölt
ásamt einni bunu eftir beinu brautinni á yfirferðartölti eða skeiði ef
knapi vill sýna það.Stjórnast af þul.
Mótanefnd
Kæru Sindrafélagar.
Einu langar mig að koma á framfæri til ykkar.
Hestamannafélagið Hornfirðingur heldur í sumar 21.-23. júní
Fjórðungsmót á Austurlandi og hefur boðið okkur í Hestamannafélaginu
Sindra að vera með. Til þess að komast á fjórðungsmót þarf að fara fram
úrtaka hjá félaginu og er meiningin að hún fari fram jafnhliða
Hestaþingi Sindra.
Kveðja
Formaður