SÍÐSUMARLEIKAR
HESTAMANNAFÉLAGSINS SINDRA
Verða haldnir sunnudaginn 21. Ágúst 2011 og hefjast kl 14:00 á Sindravelli.
Öllum opin þátttaka jafn Sindrafélögum sem öðrum. Aðgangur ókeypis og engin skráningargjöld
Dagskrá:
Smali (0-12 ára)
Smali (12-18 ára)
Lull er gull (18.ára og eldri)
Bjórreið (20.ára og eldri)
Kappreiðar (16.ára og eldri)
-100m skeið m fljótandi starti
-150m skeið
-250m skeið
-300m brokk
-300m stökk
Veitt eru verðlaun fyrir 1,2 og 3 sæti í öllum greinum.
Smali:
keppendur fara þrautabraut á tíma og fá refsistig fyrir að t.d fella keilur og sleppa úr þraut.
Lull er gull:
Keppendur þurfa að láta hest sinn sýna lull að lágmarki 2 langhliðum og er fylgst með að það sé. Dómarar velja svo bestu 3 keppendurna.
Bjórreið:
Svipuð uppbygging og í smala en til viðbótar þarf knapi að halda á fullu bjórglasi sem er vigtað fyrir og eftir. Tími gildir til úrslita en knapi fær á sig refsistig við að sleppa úr þrautum, fella keilur og þ.h ásamt því að hella úr glasinu.
Kappreiðar:
Eru með hefðbundnu sniði að því undanskyldu að ekki eru startbásar að þessu sinni.
Hægt er að skrá sig á netfangið solheimar2@simnet.is og einnig á staðnum fram að keppni.
Ekki verður keppt í grein nema það séu lágmark 3 keppendur skráðir.
Hlökkum til að sjá sem flesta bæði unga og aldna. Endum sumarið á skemmtilegann hátt.
Síðsumarsleikanefnd.