Óskars Sigurðar Þorsteinssonar Sindrafélaga.
Hafa aðstandendur komið að máli við félagið.
Þau myndu gjarnan vilja ef einhverjir sæu sér fært að aðstoða við erfidrykkju. Til stendur að hafa kjötsúpu að ósk hins látna og erum við því að leita eftir fólki sem er tilbúið til að koma og elda og undirbúa þetta og einnig vera á staðnum og aðstoða á einn eða annan hátt.
Einnig ætlar félagið að standa heiðursvörð á útförinni og þar væri gaman að fá tillögur að fólki í það.
Útförin fer fram frá Sólheimakapellu laugardaginn 19. júní og erfidrykkjan yrði í Leikskálum í Vík.
Þeir sem sjá sér fært að aðstoða okkur á einn eða annann hátt er bent á að hafa samband við Vilborgu á netfangið
isbud@simnet.is og síma 867-1486 eða Petru í síma 866-0786 eða netfangið
thorsteinn_bjorn@visir.is Til stendur svo að halda fund með þeim sem geta aðstoðað á sunnudagskvöld og því væri gott að við værum búnar að fá einhverjar meldingar um þátttöku.
Fundurinn verður þá auglýstur þegar nær dregur helginni.