Sunnudaginn 7. mars nk. kl. 13 verður boðið upp á nýstárlegan og mjög svo áhugaverðan viðburð í Rangárhöllinni á Hellu. Um er að ræða samsetta kennslusýningu undir nafninu "Hestanálgun" þar sem að koma nokkrir kennarar og sýnendur og fjallað verður um allt ferlið: Meðhöndlun, tamningu og þjálfun hestsins frá fyrstu snertingu að fullmótuðum hesti á keppnisbraut.
Sýningin fer þannig fram að fyrst fjallar Magnús Lárusson í fyrirlestri um fortamningar ungra hrossa og sýnir vinnubrögð við fortamninguna. Þar á eftir munu reiðkennararnir Ísleifur Jónasson og Sara Ástþórsdóttir, auk knapans knáa Jóhanns K. Ragnarssonar, fjalla um ábendingar, þjálfun gangtegunda og jafnvægi í áframhaldandi þjálfun.
Að kaffihléi loknu munu svo stórknaparnir Vignir Siggeirsson, Hinrik Bragason og Sigurður Sigurðarson mæta til leiks og verður þeim leiðbeint um þjálfun keppnishrossa af sjálfri Rúnu Einarsdóttur - Zingsheim sem koma mun alla leið frá Þýskalandi til að taka þátt í sýningunni. Rúna mun einnig fjalla um mismunandi áherslur í þjálfun hrossa á meginlandi Evrópu og hér á landi, auk þess að svara fyrirspurnum. Það verður örugglega ekki komið að tómum kofanum þar sem Rúna á í hlut, enda margverðlaunaður knapi með áratuga reynslu í þjálfun keppnishrossa.

Sýningin er öllum opin.
Aðgangseyrir er kr. 2.000
Frítt er fyrir börn fædd 1997 og yngri.
Ekki missa af þessum einstaka viðburði!