Jæja nú koma frábærar fréttir
Námskeiðið er orðið fastsett og verður í hesthúsinu í Eyjarhólum helgina 15. - 16. nóvember.
Kennari er Maggi Lár og fjöldi þátttakenda er kominn upp í ellefu manns

sem er hreinlega frábært hjá okkur!!
Við byrjum klukkan 9 hér heima í stofu og hlustum á fyrirlestur hjá Magga og færum okkur svo út í hesthús þar sem hann verður með sýnikennslu áður en okkur verður hent út í djúpu laugina og látin vinna sjálf.
Það verður unnið fram að hádegi og eftir matinn verður bara haldið áfram að slá í gegn í hesthúsinu til ca. 17:30 báða dagana.
Við þurfum að koma með stallmúl, beisli, langan taum (7 - 8 metra), hnakk og hjálm.
Gott er að vera með taminn hest því að þá lærum við miklu meira og þurfum ekki að eyða helmingnum af tímanum í að hemja ótemjurnar.
Gjaldið er 11.000 kr á manninn og við þurfum að leggja það inn á reikn. 0317-13-302622 kt. 540776-0169 fyrir 12. nóv. Vinsamlega sendið mér kvittun fyrir greiðslu á póstfangið dorag@hive.is
PS.
Þið sem komið með hesta eruð velkomin að koma með þá í Eyjarhóla á föstudeginum.