Verður haldið föstudaginn 10. Febrúar kl 20 í Skeiðvangi á Hvolsvelli.
keppt verður í pollar-börn-unglingar- minna og meira vanir
Sýna á hægt tölt og fegurðartölt sem stjórnast af þul
skráning á staðnum og opið öllum áhugasömum
Sindrafélagar safna stigum og veitt verðlaun fyrir stigahæsta einstakling að
loknu seinna mótinu í mars
Skráningargjald 1000 kr
kaffiveitingar á vægu verði
Hlökkum til að sjá sem flesta
Mótanefnd Sinda
Opin folaldasýning verður haldin í Skálakoti laugardaginn
28. Janúar næst komandi, í boði er hestfolalda og merfolalda flokkur auk þess
að valið er besta folald sýningar. Skráningarfrestur er til föstudagsins 27. Janúar
í síma 866-4891 eða á e-mailið info@skalakot.com
, skráningargjöldum verður stillt í hóf.
Sýningin hefst kl 13:00 og verða kaffiveitingar á staðnum.
Nú er komið að skráningu í hestaferð ársins með eftirfarandi innborgun. Ákveðið hefur verið að hver og einn greiði 15.000 kr. staðfestingargjald sem rennur upp í heildargjaldið. Leggja skal upphæðina inn á reikning 317-26-7622, kt. 540776-0169 í sl. miðvikudaginn 15. febrúar næst komandi og senda tilkynningu á bumm_bumm@hotmail.com. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt.
Meðfylgjandi er eldri auglýsing um ferðalýsingu.
Farnar verða Löngufjörur á Snæfellsnesi dagana 11.-13. ágúst 2017 og gist á Hótel Eldborg. Um er að ræða eins til tveggja hesta lúxusferð (20-25 km dagsleið) og kostar hún 37.000 kr. pr mann. Innifalið í verðinu er leiðsögn um fjörurnar, akstur milli hótels og reiðleiðar, matur, gisting í tveggja manna herbergjum (uppbúin rúm), aðgangur að sundlaug og loks hagabeit fyrir einn hest. 1000 kr. aukalega fyrir helgina ef bætist við hestur.
Til skoðunar verður að fá þjónustuaðila til að flytja hrossin vestur og til baka auk þess sem í boði eru leiguhross á staðnum fyrir þá sem ekki eiga hest en vildu upplifa stórkostlega náttúru og skemmtilegan félagsskap.
Allar nánari upplýsingar fást með því að hafa samband við Sólveigu á facebook eða í netfanginu bumm_bumm@hotmail.com.
Viltu vita hvort
heyið þitt er nógu gott fyrir hestinn þinn ?
Efnagreining ehf
býður uppá heyefnagreiningar sem eru sérsniðnar að þörfum hestamanna. Niðurstöðurnar
eru á mannamáli þar sem gefin eru upp viðmið og einnig eru alveg nýtt hjá okkur
að reikna út hvað mörg kíló þú þarft að gefa hestinum þinum á dag, reiknað út
frá fóðureiningum í þínu heyi. Þá er gefið upp hvað mörg kg þú þarft að gefa,
miðað við hvort um viðhaldsfóður er að ræða, létta brúkun eða mikla
brúkun. Við hjá Efnagreiningu ehf
leggjum árherslu á persónulega þjónustu og gott verð. Þið getið hringt í okkur
ef þið þurfið að spyrja út í greiningarnar og við erum með verð sem allir geta ráðið
við.
Hvernig sendirðu
okkur sýni ?
Okkur nægir að fá
frá þér lítið sýni, 100-200 grömm af hverju sýni, 100 gr duga ef heyið er
þurrt,það sparar líka póstkostnað að hafa sýnið ekki of stórt. Settu sýnið í
plastpoka og settu í umslag (ekki verra að það sé fóðrað).
Sendu sýnið á: Efnagreining ehf, Ásvegi 4, Hvanneyri, 311
Borgarnes. Sendu með upplýsingar um þig, nafn, heimilisfang, póstnúmer, stað,
kennitölu og tölvupóstfang. Sendu sýnið fyrripart viku svo að öruggt sé að það liggi
ekki á pósthúsinu yfir helgi. Reynslan
hefur sýnt að oftast kemur sýnið til okkar sólarhring eftir að það er
póstlagt.
Verð
á greiningum
Heyefnagreining 1 Prótein, meltanleiki og tréni mælt með
NIR-tækni + orkuútreikningar (FE). Útreiknuð fóðurþörf kg/hey á dag í þínu
heyi. Verð krónur 3950.- án vsk.
Heyefnagreining 3 Prótein, meltanleiki og tréni mælt með
NIR-tækni + orkuútreikningar(FE). Útreiknuð fóðurþörf kg/hey á dag í
þínu heyi. Kalsíum, magnesíum, kalí, natríum, fosfór, járn, kopar, mangan, zink
og selen. Verð krónur 7950.- án vsk.
Meðfylgjandi
er niðurstöðublað sem er með öllum mælingum þ.e Heyefnagreining 3.
Heyefnagreining
1 er sama niðurstöðublað nema án stein- og snefilefna.
Folaldasýning Hmf-Sindra verður haldin í Skálakoti laugardaginn 19. nóv og byrjar stundvíslega kl 13. Tekið er við skráningum til kl 18 föstudaginn 18. nóv hjá Sólveigu á e-mail: bumm_bumm@hotmail.com og í s: 842-5552
Skráningargjald á hvert folald er 1,000 kr. Vinsamlega leggið inn á reikning 0317-26-7622 kt: 540776-0169 og sendið staðfestingu á greiðslu til: bumm_bumm@hotmail.com
Við óskum eftir skráningum sem allra fyrst, þar sem nefndin áskilur sér rétt til að fresta sýningunni ef þátttaka er dræm.
Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að hafa samband við Árna í síma 893-9438. Kaffi verður selt á staðnum.
ATH Folald þarf að vera grunnskráð í WorldFeng og í eigu félagsmanns til að geta tekið þátt.
Farnar verða Löngufjörur á Snæfellsnesi dagana 11.-13. ágúst 2017 og gist á Hótel Eldborg. Um er að ræða eins til tveggja hesta lúxusferð (20-25 km dagsleið) og kostar hún 37.000 kr. pr mann. Innifalið í verðinu er leiðsögn um fjörurnar, akstur milli hótels og reiðleiðar, matur, gisting í tveggja manna herbergjum (uppbúin rúm), aðgangur að sundlaug og loks hagabeit fyrir einn hest. 1000 kr. aukalega fyrir helgina ef bætist við hestur.
Til skoðunar verður að fá þjónustuaðila til að flytja hrossin vestur og til baka auk þess sem í boði eru leiguhross á staðnum fyrir þá sem ekki eiga hest en vildu upplifa stórkostlega náttúru og skemmtilegan félagsskap.
Allar nánari upplýsingar fást með því að hafa samband við Sólveigu á facebook eða í netfanginu bumm_bumm@hotmail.com. Rukkað verður staðfestingargjald fljótlega eftir áramót.
Farin verður félagsferð Sindra helgina 4.-7. ágúst nk. og gist í Brúarlundi yfir helgina. Hver og einn greiði 5.000 kr. staðfestingargjald sem rennur upp í gistingu en er og verður óafturkræft ef hætt er við. Leggja skal upphæðina inn á reikning 317-26-7622, kt. 540776-0169 í sl. föstudaginn 15. júlí næst komandi og senda tilkynningu á bumm_bumm@hotmail.com. Innborgun jafngildir skráningu í ferðina. Allar nánari upplýsingar fást í fyrrgreindu netfangi.
Keppendur athugið að boðið er uppá tvær umferðir í öllum flokkum. Báðar umferðir gilda til úrslita. Láta þarf vita um þátttöku í seinni umferð innan við klukkutíma frá lokum hvers flokks og greiða þátttökugjald aftur. Ef einhverjar upplýsingar vantar hafið þá sambandi í síma 893-9438.
Minnum þá sem eru með farandgripi að koma með þá á föstudagskvöld.
Stjórn
LH og keppnisnefnd LH hafa eftir íhugun ákveðið að leyfa að sérstök forkeppni
fari til reynslu fram upp á þá hönd sem knapar kjósa. Hingað til hefur
hún einungis verið riðin á vinstri hönd sem er ekki í anda gæðingakeppninnar
þar sem verið er að leita að besta hestinum og því mega knapar í milliriðlum
kjósa upp á hvora hönd þeir ríða og meira að segja snúa við, og í úrslitum eru
öll atriði sýnd upp á báðar hendur.
Því
þurfa þeir knapar sem hafa áunnið sér keppnisrétt á Landsmóti nú að tilkynna
sínum hestamannafélögum sem skila skráningum til LH, upp á hvora hönd þeir
vilja ríða sína sérstöku forkeppni, hægri eða vinstri.
Það
er því mjög áriðandi til að tryggja að allir sitji við sama borð að kanna hjá
hverjum knapa, upp á hvora hönd hann vill ríða sérstaka forkeppni á Landsmóti,
áður en skráningum er skilað í gegnum Sportfeng.
Með
kveðju / Best regards / Mit freundlichen Grüssen
Polla-, barna-, unglinga-, ungmenna- A- og B- flokki gæðinga.
100m, 150m, 250m skeið, 300m brokk og 300m stökk.
Boðið verður upp á 2 umferðir í úrtökunni og verður þá seinni umferðin riðin eftir úrslit allra flokka. Velji knapi að fara í seinni umferð þarf hann að greiða skráningargjöldin aftur og þarf að taka ákvörðun um seinni umferðina ekki seinna en klukkustund eftir fyrri umferð.
Skráningargjöld eru 3500 kr í A-, B- og ungmennaflokki en 500 kr í barna og unglingaflokki
ENGIN SKRÁNINGARGJÖLD Í KAPPREIÐAR.
Skráningu lýkur miðvikudaginn 8. júní kl 23:59 skráning á mótafeng en skráning í kappreiðar og pollaflokk á netfangið hestamannafelagidsindri@gmail.com