Hestamannafélagið Sindri


15.06.2012 02:37

Því miður er einhver bilun í mótafeng svo það er ekki hægt að færa mótið yfir í kappa og þar af leiðandi ekki hægt að setja upp ráslista.
En við krossum putta að þetta verði lagað í fyrramálið svo allt verði eins og það á að vera.
Við munum því hengja ráslista utan á dómpallinn svo að fólk geti kíkt á þá.
Vonandi veldur þetta ekki miklum vandræðum en svona vill tölvutæknin stundum stríða okkur.

14.06.2012 21:40

Vegna ráslista

Verið er að vinna í að koma ráslistum inn á síðuna, þeir koma vonandi fyrr en síðar

kær kveðja

Dóra

09.06.2012 08:11

Æskulýðsmót

Æskulýðsmót hestamannafélagsins Sindra


 Verður haldið á Sindravelli dagana 12.-13. Júní. Æskulýðsmótið er opið öllum Sindrafélögum og mun reiðkennarinn Hekla Katarína Kristinsdóttir aðstoða krakkana við undirbúning fyrir hestaþing Sindra. Við munum svo gista í tjöldum, grilla, fara í útreiðartúr og hafa gaman.
Skráning hjá Hjördísi á netfangið sudur-foss@simnet.is eða í síma 8610294


 Reiðskóla og æskulýðsnefnd Sindra.

03.06.2012 22:55

HESTAÞING SINDRA 2012

Hestaþing Sindra 15. og 16. júní 2012

Á Sindravelli við Pétursey

 

Dagskrá

Föstudagur 15. júní

Kl 10:30 Forkeppni í B- flokki gæðinga - úrtaka fyrir landsmót.

Kl 12:30 Hlé og undirbúningur fyrir hópreið

Kl 13:00 Hópreið og mótsetning               

Kl 14:00 Forkeppni í polla-, barna-, unglinga-, ungmenna- og A- flokki. - úrtaka fyrir landsmót.

Skráningargjöld fyrir ungmenna- A- og B- flokk er 2500 kr á 1. hest, 2000.- kr á 2. hest knapa, 1.500- á 3. hest knapa, 1.000- kr á  4. hest knapa og svo framv. (aðgangseyrir er innifalinn fyrir knapa og fær hann afhent armband í miðasölu. Skráningargjöld verða samtals að hámarki kr 15.000.- á fjölskyldu þ.e. foreldra og börn alls)

Athugið: Keppnisröð er samkvæmt mótsskrá.

 

Kl 19:00 Töltkeppni

Töltkeppni sem er opin öllum, keppt er til úrslita.

Peningaverðlaun í 1. sæti.

Skráningargjald 3000 kr.

 

Laugardagur 16. júní

Kl 11:00 úrslit í B- flokki, barna-, unglinga-, ungmenna og A- flokki

Kl 14:30 Kappreiðar - opnar öllum

100 m skeið- með fljótandi starti. Skráningargjald 500 kr

150 m skeið- 1. verðlaun 25.000 kr - Skráningargjald 2000 krónur.

300 m brokk - Skráningargjald 500 kr á hest

300 m stökk - Skráningargjald 500 kr á hest

250 m skeið - Skráningargjald 500  kr á hest.

 

Skráning er hjá:

Dóru á netfangið dorajg@simnet.is og í síma 895-5738

Síðasti skráningardagur í hringvallargreinar er á miðnætti þriðjudagskvöldið 12. júní. Ekki verður tekið við skráningum eftir það. Hægt verður að skrá sig í kappreiðar líka á kappreiðadag. Við skráningu þarf að koma fram IS númer hests og nafn og kennitala knapa.

Skráningargjöld greiðist inn á 0317-13-302622 kt. 540776-0169 þar sem fram kemur nafn knapa.

 

Aðgangseyrir er kr 2.000.- fyrir tvo daga en 1.500.- fyrir einn dag. Frítt er fyrir 12 ára og yngri.

26.05.2012 23:31

KVENNAREIÐ með karlana

KVENNAREIÐ með karlana, emoticon
er handan við hornið,
nánar tiltekið 8. júní nk!!!!!!!!!!!

líkt og síðasta ár verður riðið frá Péturseyjarvelli og að útreiðartúr loknum verður snæddur "síðbúinn" kvöldmatur í Sindrabúð

ATH smá breyting á áætlun !
Riðið verður frá Sólheimakoti og endað á Sindravelli !

Lagt af stað kl 19

skráningarfrestur er til og með 6. júní.
við skráningum taka;
Lára í síma 8634310 eða laraodd@simnet.is
Sindri í síma 8947232 eða dorajg@simnet.is

fyrir hönd ferða og fræðslunefndar
Lára Oddsteinsdóttir

21.05.2012 23:13

Landsmót 2012

Hestamenn athugið!

Vaktir hestamannafélaganna á Landsmóti 2012 eru með sama móti og áður.

Helstu störf á þeim vöktum eru eftirfarandi:

Hliðvarsla

Aðstoð við fótaskoðun

Innkomustjórnun

Upplýsingamiðstöð

Aðstoð á skrifstofu

Ýmis störf á svæði

Aukavaktir



Starfsmenn vaktana skulu hafa náð 18 ára aldri.

Starfsmenn hafa aðgang að mótinu á meðan á vöktum þeirra stendur en fá
ekki almennan aðgöngumiða. Einnig má nefna að starfsmönnum er
skaffaður matur á meðan á vakt stendur.

Þeir sem hafa áhuga á því að starfa á þessum vöktum eru beðnir um að
hafa samband í gegnum netfangið landsmothugrun@gmail.com við fyrsta
tækifæri og gildir þar reglan að fyrstur kemur fyrstur fær.

Mikilvægt er að senda; nafn, kennitölu, nafn hestamannafélags og
símanúmer. Mér til aðstoðar í ár verður Ragna Rós Bjarkadóttir og munum
við hafa samband í framhaldinu til þess að finna útúr því hvað hentar
hverjum og hvenær.

Þessar vaktir tókust mjög vel á síðasta móti og vonumst við til að
sunnlendingar standi sig jafn vel og norðlendingar gerðu á síðasta
móti. Koma svo!


Með vissu um góðar undirtektir,

Hugrún Ósk Ólafsdóttir

Mannauðsstjóri Landsmóts hestamanna

18.05.2012 12:03

Vinna á Landsmóti 2012

Ágætu félagar.

Formanni barst tölvupóstur  frá Landsmóti ehf þar sem þeir eru að óska eftir starfsfólki til að vinna vaktir á Landsmótinu í Reykjavík. Einnig óska þeir eftir unglingum sem myndu vilja draga fána að húni og ef það eru einhverjir unglingar sem væru til í að vera í upphlut við að veita verðlaun þá (held reyndar að það sé ekki borgað fyrir það)

Ef það er einhver sem væri til í að leggja sitt af mörkum til að gera Landsmót 2012 sem flottast þá má sá hinn sami gjarnan senda mér tölvupóst með nafni og símanúmeri eða hringja í mig og láta mig vita.

Netfangið mitt er: solheimar2@gmail.com og síminn er 8660786

Með félagskveðju
formaður

15.05.2012 11:51

Reiðskólar Sindra

Reiðskólar Sindra 2012

Reiðskólar Sindra verða í ár dagana 4.-10.júní í Vík og í Skálakoti.

Reiðskólinn er fyrir alla krakka frá 6 ára aldri (fædd 2006) og kostar námskeiðið kr. 7.500.-, (systkynaafsláttur) og fyrir félaga í hestamannafélaginu Sindra kostar kr 5.500.-

Ef næg þátttaka fæst veður jafnvel fullorðinshópur.

Skráning hjá:

Ástu Öldu á e-mailið skasta_15@hotmail.com gsm: 8481861 (eftir kl 16:15)
eða hjá Hjördísi á e-mailið sudur-foss@simnet.is gsm: 8610294





Skráning fyrir Reiðskólann er opin til föstudagsins 1.júní 2012

 

Við biðjum fólk að virða það við okkur að vegna mikillar þátttöku undanfarin ár höfum við ákveðið að taka ekki við skráningum eftir þann tíma, því er um að gera að vera tímanlega í því að ákveða sig.


Skráning er svo tekin gild við greiðslu þátttökugjaldsins.


 

Með kveðju

Reiðskóla- og æskulýðsnefnd hmf. Sindra

 

26.04.2012 20:11

Reiðtúr æskulýðsins

Við þökkum ykkur öllum krakkar sem komuð með okkur í þennan skemmtilega reiðtúr, þetta var ljómandi gaman. Veðrið var eins og best verður á kosið og allir brosandi hringinn. Fararstjórar voru Vilborg og Ásta Alda og í för voru alls 13 krakkar þar af 3 strákar sem héldu utan um stelpuhópinn. Riðið var að Klifandi en áð við Flúðarnef þar sem við fundum Svala og Prince póló undir steini:-) Ekki var mikið verið að hangsa og riðið ákveðið heim, reiðtúrinn tók 1 klst og held ég að bæði menn og hestar hafi farið sæl heim.


f.h. Æskulýðsnefndar

24.04.2012 18:07

Fundur Berlínarfara

Boðað er til fyrsta fundar varðandi fyrirhugaðrar HM ferðar 2013, á morgun miðvikudaginn 25. Apríl. Kl. 20:30 í grunnskólanum. Efni fundarins eru fjáröflunarleiðir ofl.


Með kveðju æskulýðsnefnd.

23.04.2012 14:11

frestun æskulýðsreiðtúrs

Vegna óviðráðanlegra ástæðna verður að fresta æskulýðsreiðtúrnum... því verður farið frá hesthúsinu hans Árna Gunnars kl 18:00 á fimmtudaginn.

 

Við biðjumst velvirðingar á hringlinu og stuttum fyrirvara.

 

Með kveðju æskulýðsnefnd.

17.04.2012 19:03

Skemmtireiðtúr æskulýðsins

Jæja krakkar

 

Æskulýðsnefnd flautar til skemmtireiðtúrs mánudaginn 23. Apríl næst komandi. Farið verður frá húsinu hans Árna Gunnars kl 18:00 og farinn góður reiðtúr.

 

Okkur hlakkar til að hitta ykkur.

 

Kveðja æskulýðsnefnd hmf. Sindra

12.04.2012 23:28

Firmakeppni Sindra

Laugardaginn 21. apríl 2012 verður Firmakeppni Sindra haldinn á Sindravelli.

Keppni hefst kl 14:00

Flokkar verða í þessari röð: pollar, börn, unglingar, konur, karlar og unghross.
Pollar, börn, unglingar og unghross keppa á hringvellinum en karlar og
konur á hlaupabrautinni.
Dómarar eiga að horfa í FEGURÐ Í REIÐ þannig að ekki skiptir máli
hvort hross er á tölti, brokki eða jafnvel skeiði.
Miðað er við að
hver knapi í kvenna- og karlaflokki fari 2x fram og til baka.
Í öðrum flokkum verða 3-4 hross (fer eftir þátttöku) inni á
hringvellinum í einu og þulur lætur vita þegar dómarar hafa séð nóg.
Miðað er við 2-3 hringi á hvert holl.
Hægt er að skrá fyrirfram á netfangið solheimar2@gmail.com
eða á Sindravelli milli
13:00-14:00 á keppnisdag.
Mótanefndarmenn eru byrjaðir að safna firma og verðið er það sama og
verið hefur í mörg ár, 1000 kr.
Ef einhvern langar að kaupa firma en fær ekki heimsókn frá okkur, þá
er hægt að hafa samband við formann. (einungis gengið í hús í Vík og
milli bæja í Mýrdalnum og undir Eyjafjöllum)
Að lokinni keppni ætla krakkarnir sem eru að fara til Berlínar á HM
íslenska hestsins 2013 að hefja sína fjáröflun með kaffi og kökusölu
og verður verði stillt í hóf (enginn posi á staðnum)
Við hvetjum alla til að mæta og eiga skemmtilegan dag, horfa á falleg
hross og styrkja í leiðinni þessa duglegu krakka.

Með félagskveðju
Mótanefnd

22.03.2012 07:52

Heimsmeistarmót í Berlín 2013

Kæru félagar.


 Fyrirhugað er að reiðskóla- og æskulýðsnefnd haldi á heimsmeistarmót íslenska hestsins í Berlín 2013 með krakka fædda 1999 og uppúr. Lágmarks þátttökufjöldi er 10 manns. Áætlaður ferðakostnaður á barn er um 50.000,- en ætlunin er að nota ýmsar fjáröflunarleiðir til að fjármagna restina af ferðinni, sem að krakkarnir þurfa að sjálfsögðu að taka fullan þátt í.
Þetta er spennandi og krefjandi verkefni sem að krefst mikillar samstöðu , samvinnu og metnaðar nefndar, barna og foreldra. Það er því nauðsynlegt að negla niður sem fyrst fjölda þátttakenda til að hefjast handa við verkið.
Skráning á netfangið
sudur-foss@simnet.is eða isbud@simnet.is fyrir 1. apríl 2012

Mikil áhersla er lögð á að skrá börnin fyrir þennan tíma, komi til skráningar eftir að fjáröflun hefur hafist eru líkur til að borga þurfi fullt gjald fyrir barnið í ferðina sem er u.þ.b. 110.000.- fyrir utan uppihald.

Með kveðju

Reiðskóla og æskulýðsnefnd Sindra.

17.03.2012 11:36

3. Vetrarmót Sindra

3. Vetrarmót Sindra verður haldið SUNNUDAGINN 25. mars kl 13:00 á SINDRAVELLI.

Skráning hjá Petru á netfangið solheimar2@gmail.com og í síma 8660786 fyrir kl 16:00 laugardaginn 24. mars
Skráningargjöld 1000 kr á knapa í kvenna og karlaflokki.


Þetta er síðasta mótið í vetrarmótaröðinni og því veitt verðlaun fyrir stigahæstu Sindraknapa að keppni lokinni í hverju flokki.
Varðandi staðsetningu mótsins. Þá ákvað Mótanefnd á fundi sínum um daginn að færa mótið á Sindravöll þar sem að reiðvöllurinn í Vík er tæplega nothæfur til keppni og heyrst hafa óánægjuraddir vegna hans. Þannig að ákveðið var að nota okkar félagsvöll sem er í toppstandi eftir viðgerðir síðasta árs.

Vonumst til að sjá sem flesta
Mótanefnd



Nafn:

Vefstjóri: Vilborg Smáradóttir

Um:

Minningarsjóður um Óskar Sigurð Þorsteinsson. Hægt er að styrkja sjóðinn með kaupum á minningarkortum að lágmarki 1000 kr hjá: Hjördísi Rut; sudur-foss@simnet.is s: 861-0294, Vilborgu; isbud@simnet.is s: 867-1486, Ástu Öldu; skasta15@gmail.com s: 848-1861. Sjóðurinn styrkir æskulýðsstarf Hmf Sindra.

Kennitala:

540776-0169

Bankanúmer:

0317-26-100622

Tenglar

Eldra efni


Flettingar í dag: 1269
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 3086
Gestir í gær: 117
Samtals flettingar: 10053
Samtals gestir: 200
Tölur uppfærðar: 6.3.2026 19:08:47