Kæri
formaður,
Stjórn
LH og keppnisnefnd LH hafa eftir íhugun ákveðið að leyfa að sérstök forkeppni
fari til reynslu fram upp á þá hönd sem knapar kjósa. Hingað til hefur
hún einungis verið riðin á vinstri hönd sem er ekki í anda gæðingakeppninnar
þar sem verið er að leita að besta hestinum og því mega knapar í milliriðlum
kjósa upp á hvora hönd þeir ríða og meira að segja snúa við, og í úrslitum eru
öll atriði sýnd upp á báðar hendur.
Því
þurfa þeir knapar sem hafa áunnið sér keppnisrétt á Landsmóti nú að tilkynna
sínum hestamannafélögum sem skila skráningum til LH, upp á hvora hönd þeir
vilja ríða sína sérstöku forkeppni, hægri eða vinstri.
Það
er því mjög áriðandi til að tryggja að allir sitji við sama borð að kanna hjá
hverjum knapa, upp á hvora hönd hann vill ríða sérstaka forkeppni á Landsmóti,
áður en skráningum er skilað í gegnum Sportfeng.
Með
kveðju / Best regards / Mit freundlichen Grüssen
Vera
Vilhjálmsdóttir