Hestaþing Sindra
Föstudaginn 10. og
laugardaginn 11. júní 2016
Landsmótsúrtaka Sindra og Kóps
Keppt verður í;
Polla-, barna-, unglinga-, ungmenna-
A- og B- flokki gæðinga.
100m, 150m, 250m skeið,
300m brokk og 300m stökk.
Boðið verður upp á 2 umferðir í úrtökunni og verður þá seinni umferðin riðin eftir úrslit allra flokka.
Velji knapi að fara í seinni umferð þarf hann að greiða skráningargjöldin aftur og þarf að taka ákvörðun
um seinni umferðina ekki seinna en
klukkustund eftir fyrri umferð.
Skráningargjöld eru 3500 kr í A-, B- og ungmennaflokki en 500 kr í barna og unglingaflokki
ENGIN SKRÁNINGARGJÖLD Í KAPPREIÐAR.
Skráningu lýkur miðvikudaginn 8. júní kl 23:59 skráning á mótafeng en skráning
í kappreiðar og pollaflokk á netfangið hestamannafelagidsindri@gmail.com
Nánari upplýsingar á netfangið hestamannafelagidsindri@gmail.com
eða í síma 848-1861
Ráslistar og dagskrá verða birt
þegar nær dregur móti.
Hlökkum til að sjá ykkur
Mótanefnd Sindra