Folaldasýning Hmf-Sindra verður haldin
í Skálakoti sunnudaginn 9. nóv og byrjar stundvíslega kl 11.
Tekið er við skráningum til miðnættis fimmtudaginn 6. nóv hjá Dóru
á e-mail: dorajg@simnet.is og í s: 895-5738
Skráningargjald á hvert folald er 1,000 kr.
Vinsamlega leggið inn á reikning 0317-26-7622 kt: 540776-0169 og sendið staðfestingu á greiðslu til: dorajg@simnet.is
ATH
Folald þarf að vera grunnskráð í WorldFeng og
í eigu félagsmanns til að geta tekið þátt.
Dómari verður Kristinn Guðnason
Súpa og drykkjarföng á góðu verði í hléi.
Strax eftir matarhlé stýrir Kristinn uppboði á svartarnhöfðóttri gimbur sem var gefin til styrktar Hmf-Sindra

Gimbur 35Z17-1421
F: Benni frá Sólheimakoti 44Z17-1211
M: Þruma frá Eyjarhólum 35Z17-2008
Þruma er undan Skessu frá Stóru-Heiði og Núpi 08-305
Að sjálfsögðu er gimbrin tvílembingur og vigtaði 45,2 kg og
systir hennar (líka arnhöfðótt) 45,4 kg