
Helgina 14. og 15. júní
Haldin á Sindravelli við Pétursey
Keppt er í polla-, barna-, unglinga-, ungmenna-, A- og B- flokki gæðinga
Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur móti
Einnig verður keppt í kappreiðum;
100m, 150m og 250m skeiði, 300m brokki og 300m stökki.
Skráning á skráningarvef sportfengs (linkur hér hægra megin á síðunni)
Skráningu lýkur þriðjudaginn 10. júní kl 23:59 og skráning er ekki gild fyrr en kvittun fyrir skráningargjöldum er send á netfangið solheimar2@gmail.com
Skráningargjöld eru 500 kr í barna- og unglingaflokk en í aðra flokka 3500 kr (pollar frítt). Aldrei meira en 14000 á fjölskyldu (foreldrar + börn).
Nú í ár ætlum við að hvetja sérstaklega til þátttöku í kappreiðum. Þess vegna verður skráning á staðnum þangað til klukkustund fyrir fyrsta hlaup og enginn þátttökugjöld rukkuð fyrir kappreiðar. (ekki skráð í kappreiðar gegnum sportfeng)
Ekki verður um rafræna tímatöku að ræða að þessu sinni.
Ef upplýsingar vantar má hafa samband við Petru í síma 612-2126
612-2126 og á netfangið solheimar2@gmail.com