Jæja ágætu Sindrakonur og já karlar líka því þeir fá að vera með.
Nú
styttist óðum í páska og við væntum þess að þið séuð búin að járna,
dusta rykið af hnakknum og athuga hvort reiðbuxurnar hafi nokkuð hlaupið
inni í skáp.
Því nú er komið að kvennareið með karlana.
Kvennareið með karlana verður farin (ef næg þátttaka verður) fimmtudaginn 17. apríl (Skírdagur).
Við
ætlum að hittast við hesthúsið í Eyjarhólum kl 17:00 og ríða út í
sólalagið undir leiðsögn hans Atla í Nykhól. Að reiðtúr loknum fáum við
okkur eitthvað gott í gogginn og hestarnir geta fengið húsaskjól og hey í
hesthúsinu í Eyjarhólum á meðan mannfólkið snæðir. kostnaður á mann er
kr 1500.
Ef þú ætlar að koma með þá þarftu að láta vita í síma 612-2126 eða á netfangið solheimar2@gmail.com í
síðasta lagi þriðjudaginn 14. apríl.
Aldurstakmarkið er 18 ára og við
væntum þess að sjá ykkur sem allra flest hress og kát að sjálfsögðu.
Stjórnin