Hestaíþróttahátíð USVS í Pétursey 20.júlí
Hestaíþróttahátíð USVS verður haldin laugardaginn 20. júlí á Sindravelli í Mýrdal.
Hægt er að skrá sig með því að smella á tengil hér hægra megin á síðunni sem heitir SKRÁNINGARVEFUR
Velja þarf Kóp sem hestamannafélag sem heldur mótið til að finna
héraðsmótið og þeir sem ætla að skrá í pollaflokk þurfa að velja Tölt T1
annað.
Skráningarfrestur er til fimmtudagsins 18.júlí kl.23.59.
Ef vandamál koma upp við skráningu þá er hægt að hringja í Kristínu Lár í síma 4874725
Það verður keppt í pollaflokki, tölti og fjórgangi í barnaflokki, tölti, fjórgangi og fimmgangi í unglinga, ungmenna og opnum flokki.
Í lokin verður 100m skeið í opnum flokki.
Vonumst við til að sjá sem flesta keppendur á öllum aldri.
Hestamannafélögin Kópur og Sindri