Aðalfundur Hestamannafélagsins Sindra verður haldinn föstudaginn 22. febrúar 2013 kl 20:30. Fundurinn er haldinn á Ströndinni Víkurskála.
Dagskrá fundarins:
1.Fundarsetning- kosning fundarstjóra og ritara
2.skýrsla stjórnar og reikningar
3.kosningar
4.skipun í starfsnefndir
5.önnur mál
Í fundarhléi verður kaffi og meðlæti í boði félagsins.
Við hvetjum ykkur öll til að mæta og hafa áhrif á starf félagsins.
Það
liggur fyrir að kjósa þarf 2 nýja meðstjórnendur í stað þeirra Guðnýjar
Sigurðardóttur og Þorgerðar Guðmundsdóttur og gaman væri að fá að vita
af því ef einhverjir eru áhugasamir um að starfa í stjórn.
Annað
sem stjórnin vill koma á framfæri er að á aðalfundi er veitt
viðurkenning til knapa ársins og efnilegasta knapa ársins og getur fólk
sent inn tilnefningar á solheimar2@gmail.com eða isbud@simnet.is þar sem tilgreind eru helstu
afrek, kostir og framför hjá viðkomandi. Tilnefningar þurfa að berast
fyrir 15. febrúar 2013.
Á haustdögum ákvað stjórn félagsins að setja á fót
þriggja manna nefnd sem færi í það að skoða lög félagsins ásamt því að
búa til reglugerð varðandi mótahald hjá félaginu. Í þessari nefnd voru
þau Hlynur Guðmundsson, Vilborg Smáradóttir og Petra Kristín
Kristinsdóttir.
Breytingar sem nefndin leggur til eru sendar til félagsmanna í tölvupósti (almennum til þeirra sem ekki nota tölvupóst). Endilega kynnið ykkur þetta vel fyrir aðalfund því þar verður þetta tekið til umræðu og atkvæða. Ástæða þess að við sendum þetta á alla félagsmenn er sú að með því móti getur fólk kynnt sér málið og komið skoðunum sínum og hugmyndum á framfæri án þess að vera að sjá þetta í fyrsta sinn á aðalfundi. Ef þú hefur einhverjar athugasemdir og/eða tillögur að breytingum þá er um að gera að senda það á netfangið solheimar2@gmail.com eða isbud@simnet.is. Einnig er ykkur frjálst að koma með breytingartillögu á aðalfund og bera hana þar upp. Meðfylgjandi eru líka tillögur stjórnar að nefndarskipan félagsins fyrir árið 2013-2014.