22.08.2012 15:31
Sunnudaginn
26. ágúst kl 13 verður Héraðsmót USVS í hestaíþróttum á Sindravelli.
Keppt verður í barnaflokki (fjórgangur og tölt), unglingaflokki (fjórgangur, fimmgangur
og tölt) og opnum flokki (fjór- fimmgangur og tölt).
Í öllum flokkum
verða 3 keppendur inni á vellinum í einu og riðið eftir þul.
Í lok dags
verður svo keppt í 100m fljótandi skeiði.
Ákveðið hefur verið að bjóða
upp á pollaflokk en þau munu ríða ca 2 hringi á vellinum með frjálsri
aðferð.
Ef ekki er næg þátttaka í einhverri grein fellur hún niður.
Skráning hjá Krístinu Lár á netfangið fljotar@simnet.is fyrir kl 21:00
fimmtudaginn 23. ágúst.
Vonumst til að sjá sem allra flesta bæði keppendur og áhorfendur.
Hestamannafélögin Sindri og Kópur