Sýningarþjálfun fyrir börn, unglinga og ungmenni.
Hún Hulda Gústafsdóttir ætlar, ásamt fríðu föruneyti að koma og vera með sýningarþjálfun fyrir mótið okkar. Mæting á Sindravöll 7. og 8. júní. kl. 15:45. Markmiðið er að fá alla krakkana í einu þessa daga þar sem farið verður yfir hlutina með öllum hópnum og síðan fá þau kennslu eitt í einu. Huldu finnst svo mikilvægt að krakkarnir fylgist hvert með öðru á meðan á einkakennslu stendur. Það fer allt eftir því hvað margir nýta sér þetta hvað kennslan stendur lengi hverju sinni.
Sjáumst á Sindravelli
Kveðja reiðskóla- og æskulýðsnefnd.