Kæru félagar
Nú ætlum við taka aðeins til hendinni á Sindravelli fyrir næsta mót. Miðvikudaginn 20. apríl ætlum við að hafa vinnudag og vonumst við að sem flestir sjái sér fært að koma og aðstoða okkur hafist verður handa kl 17:00 en fólk getur mætt frá þeim tíma, við ætlum að slá upp smá pylsuveislu svo vinnufólk geti haldið óhikað áfram fram á kvöld. Ekki verra að hafa hamar og þessi helstu verkfæri meðferðis.
Með kveðju Vallar- og Mótanefnd