Síðsumarmót Hestamannafélagsins Sindra
Laugardaginn 14. ágúst 2010.
Keppni hefst stundvíslega kl 10:30
Keppnisröð er eftirfarandi:
10:30 B-flokkur gæðinga => forkeppni
Pollar => kláraður.
Börn => forkeppni
Unglingar => forkeppni
A-flokkur gæðinga => forkeppni
Úrslit flokka í sömu röð og forkeppni strax að lokinni forkeppni í A-flokki.
15:00 Töltkeppni forkeppni og úrslit (ef næg þátttaka fæst, minnst 10 keppendur)
Kappreiðar í beinu framhaldi af tölti.
100m skeið með fljótandi starti
150m skeið
300m brokk
300m stökk.
Mótið er opið öllum. Skráningargjöld í A- og B- flokki gæðinga og tölti 1500 kr og 500 kr í kappreiðum á hvert hross. Greiðist í allra síðasta lagi á staðnum. Ef greitt er í heimabanka fyrir keppni skal framvísa kvittun á keppnisdag.
Skráningar á netfangið solheimar2@simnet.is og í síma 8660786 (Petra)
Vonumst til að sjá sem flesta
Mótanefnd.
Ps. Sjoppa á staðnum en ekki posi..
Ef þátttakan verður framar vonum getur tímasetning riðlast.. :)
með kveðju Mótanefnd