28.05.2010 09:47
Ákveðið var á félagsfundi í gær að fresta hestaþingi Sindra sem vera átti 12-13 júní. það var einnig ákveðið að svo stöddu að blása það ekki af alveg strax en stefna á að reyna að halda það í ágúst. Hins vegar verður sú ákvörðun tekin eftir Landsmót hestamanna (ef það verður).
Okkur og þeim sem mættu á fundinn fannst að eitthvað þyrfti að gera og því ákvað fundurinn að við myndum halda mót "Sumarmót Sindra" samhliða Kópsmótinu á Klaustri 19-20 júní. þar sem að keppt yrði í gæðingakeppni og jafnvel fleiru og veitt verðlaun samkvæmt því.
Núna þarf mótanefnd að hittast og bretta upp ermar og gera endanlega dagskrá með þetta sumarmót. Þetta verður svo að sjálfsögðu kynnt hér inni og á öðrum vettvangi. Ég vona líka að fólk taki vel í það að aðstoða á einn eða annan hátt að undirbúa og starfa á mótinu á Klaustri.
Varðandi úrtöku fyrir Landsmót 2010.
Þá samþykkti fundurinn að við myndum halda sameiginlega úrtöku með félögunum sem eru aðillar að Rangárbökkum ehf. Sú úrtaka verður á Hellu dagana 11-13 júní og verður auglýst betur þegar nær dregur.
Þessi ákvörðun varðandi Hestaþing Sindra var ekki auðveld og síður en svo ánægjuleg. En miðað við aðstæður á og við völlinn þá er engan veginn forsvaranlegt að halda úti móti í júní og alls ekki hægt að leggja það á neinn hvorki menn né skepnur.
Við vonum bara að sem flestir sjái sér fært að koma á Sumarmót Sindra og gera sér glaðann dag hvort sem er sem keppandi eða áhorfandi.
með félagskveðju
Formaður