Það hafa orðið smá breytingar á þeim dögum sem reiðnámskeiðið verður haldið.
Fyrsti dagur verður eins og var áætlað, fimmtudaginn 4. febrúar kl. 13:00 en svo eru það miðvikudagarnir 17. feb og 3. mars kl. 11:00
Námskeiðið er orðið fullskipað með 12 nemendum og greiðir hver og einn 18.750 kr inn á reikning hestamannafélagsins sem er gefinn upp hér í glugganum til hægri.
Athugið að greiða verður allt gjaldið fyrir fyrsta dag námskeiðs
og sendið kvittun í tölvupósti á sudur-foss@simnet.is
Kveðja
Ferða- og fræðslunefnd