Sæl öll
Mig langar að koma á framfæri að á miðvikudaginn 24. júní og fimmtudaginn 25.
júní verður okkar árlega æskulýðsmót á Sindravelli.
Í ár mun Kristín Lárusdóttir sjá um reiðkennsluna en hún ætti að þekkja flest okkar
síðan í æfingabúðunum og er mjög gaman að geta boðið upp á einskonar
framhaldsnámskeið. Vonandi hafið þið verið dugleg að æfa ykkur krakkar, við
hlökkum til að sjá ykkur á miðvikudaginn.
Mæting er kl 15:00 út á Sindravöll en mótið kostar á mann 1.500.- innifalið í því er
hmf. Sindra buff, kennslan, fæði s.s. kvöldmatur, morgunnmatur, hádegismatur og
kaffi.
Krakkarnir mega sjálf koma með snakk og gos fyrir kvöldið en nammi finnst okkur
vera óþarft og vonumst við til þess að þið látið snakkið duga.
Við sláum upp tjaldbúðum eins og verið hefur og væri sniðugt fyrir ykkur að
sameina ykkur í tjöldin.
Vinsamlegast skráið ykkur á e-mailið isbud@simnet.is hjá Vilborgu fyrir
mánudaginn 22. júní. Vanti frekari upplýsingar er síminn 867-1486.
Með kveðju
Reiðskóla og æskulýðsnefnd