Kæru félagsmenn
Einhverjir hafa kannski orðið þess varir og sumir fengið ítrekunarbréf frá bankanum vegna ógreiddra félagsgjalda sinna. Þykja bréfin harðorð og hefur borið á viðkvæmni í þess garð en verð ég að viðurkenna að sjálf hef ég ekki séð bréfin, (sem eru reyndar stöðluð frá bankanum), svo ég get ekki metið beinskeytni þeirra. Ég hafði beðið um það sérstaklega í ár að engin kröfubréf yrðu send af hálfu bankans og hafði ég hugsað mér að ýta sjálf við þeim sem "gleymt" hefðu að greiða gjöldin sín, það var liður í sparnaðar átaki sem nú er greinilega fallið um sjálft sig.
Mannleg og tæknileg mistök í bankanum urðu þó til þess að beiðni minni var ekki fylgt eftir og harma ég það sérstaklega að bréf voru send á heiðursfélaga sem hafa val um að borga félagsgjöldin vegna aldurs síns en aðrir hafa nú kannski átt það skilið þó vegna gleymsku sinnar. Það hefur ringt yfir formanninn okkar kvörtunum sem er jú fullskiljanlegt og höfum við nú sent bréf þessu til útskýringar og afsökunar til heiðursfélaga okkar og vonumst til þess að fólk sýni þessum aðstæðum skilning en mig langar að benda á að oft er betra að leita útskýringa áður en ásökunum er sleppt út í loftið.
Með kveðju
Vilborg
Gjaldkeri