Síðasta laugardag var Firmakeppni Sindra haldin á Sindravelli við Pétursey. Þáttakan var gríðarlega góð, 63 hross kepptu og seld voru 107 firma Það fór ekki framhjá neinum að nú standa yfir heilmiklar framkvæmdir á vellinum okkar en keppendur og fákar þeirra létu það nú ekki trufla sig í einbeittri keppni.
Þetta árið var ákveðið að gera töluvert meiri kröfur til bæði knapa og hesta með því að fara fram á að þau riðu fyrirfram ákveðið prógram. En þar sem þáttakan var svona mikil teygðist nokkuð á mótinu og höfðu hörkutólin sem komu ríðandi frá Vík nokkrar áhyggjur af því að komast ekki heim fyrir myrkur. En það leystist allt farsællega og allir komust, sem betur fer, heilir á áfangastað.
Ég verð að taka það fram enn og aftur hvað unga fólkið okkar er duglegt og orðnir miklir reynsluboltar í keppnum. Vonandi halda þau þessu sem flest áfram langt fram á fullorðinsárin.