Jæja góðir Sindrafélagar.
Næstkomandi laugardag (25.Apríl) verður Firmakeppni Sindra haldin á Sindravelli.
Keppni hefst stundvíslega kl 14. Hægt er að skrá sig á netfangið
dorag@hive.is til miðnættis á föstudag. Einnig er hægt að skrá sig á staðnum á laugardaginn.
Keppt verður í polla-, barna-, unglinga-, kvenna-, karla- og unghrossaflokki.
Hross í unghrossaflokki þurfa að vera fædd 2004 og 2005 og IS-númer gefið upp við skráningu.
Þar sem að margir hafa komið að máli við mótanefnd um að gera eitthvað meira úr firmakeppninni en vetrarmótunum. þá var ákveðið á fundi hjá mótanefnd að setja upp einfalt prógram fyrir keppendur sem stýrt yrði af þul.
Hér fyrir neðan sjáið þið þetta prógram.
Börn
Milliferð tölt eða brokk
Unglingar
Hægt tölt
Milliferð tölt eða brokk
Yfirferð tölt eða brokk
Riðið upp á báðar hendur
Fullorðnir
Hægt tölt
Milliferð tölt eða brokk
Yfirferð tölt, brokk eða skeið
Riðið upp á báðar hendur
Unghross
Fara á sínum gangi og upp á báðar hendur
Þulur stýrir og tekið verður á grófri reiðmennsku
Mótanefnd.