Sælir félagar
Byrjað er af krafti að fletta þökunum upp af skeiðvellinum okkar, verkið er rétt rúmlega hálfnað en fleiri hendur væru vel þegnar í málið. Á "vinnudaginn" okkar í gær mættu 8 manns en af þeim voru 6 stjórnarmeðlimir og áhangendur, við ætlum að fara aftur í kvöld kl 19:30 og væri frábært ef einhverjir sæju sér fært að koma og fletta nokkrum þökum af, unglingarnir okkar eru fullgildir í þetta mál og gæti unnist mjög hratt ef fólk liti þó ekki nema væri örlítið við. Enn á þó eftir að skera 3 metra af vellinum og það verður gert á laugardagsmorgunn, þeir sem ekki geta mætt núna eru því velkomnir í byrjun næstu viku þegar þeim hentar til að flýta verkinu málið er einfalt þökunum er svipt af vellinum og staflað á pallettur. Það kom í ljós í gær að besta verkfærið eru guðsgafflarnir ( hendurnar) og góðir hanskar, kvíslin er alveg óþörf. Enn gæti vantað pallettur og væri frábært ef einhver vissi um nokkrar sem hægt væri t.d. að flytja útúr á hestakerru.:-)
Með kveðju f.h stjórnar
Vilborg