Ferða- og fræðslunefnd stendur fyrir járninganámskeiði þann 21.mars nk. Hinn alkunni járningarmaður Gvendur Skalli ætlar að koma og fræða okkur um járningar í formi fyrirlestra og verkkennslu. Námskeiðið geta sótt bæði þeir sem vilja hella sér útí járningar og einnig þeir sem vilja fræðast um gildi og mikilvægi réttrar járningar án þess endilega að járna sjálfir. Norður-Götur hrossarækt býður okkur aðstöðu sína endurgjaldslaust og hefst námskeiðið kl. 10 og stendur fram eftir degi.
Nánari upplýsingar gefur Hjördís Rut í síma 8610294 eftir kl. 17:00 eða á netfangið sudur-foss@simnet.is