Í dag átti að vera þriðji dagur í reiðnámskeiði með Magga Lár. En nú er hann lagstur í flensu svo að því verður frestað um óákveðinn tíma. Sem er bara ekkert slæmt því hér var að skella á töluverður strekkingur með skafrenningi og tilheyrandi.
Nú þarf hópurinn bara að spjalla saman sín á milli og ákveða hvort það sé betra að hafa næsta námskeið fljótlega á virkum degi eða bíða með þetta fram að páskum, því það er þétt skipuð dagskrá hjá kennaranum okkar.