Uppskeruhátíð krakkanna
Jæja þá er afstaðin uppskeru hátíð krakkanna og býst ég við því að allir hafi komið heim með meistaralega skreytta múla sem nýtast vonandi vel á næstunni. En við semsagt máluðum á stallmúla nöfn ýmist eigenda eða gæðinganna, fórum í ratleik og fengum pizzu og gláptum á videó. Mætingin var alveg hreint frábær 23 hressir hestakrakkar og langar mig að þakka ykkur enn og aftur fyrir skemmtilegan dag.
En til útskýringar varðandi fjáröflunina okkar vegna ferðarinnar á Æskuna og hestinn í vor, þá bað ég krakkana að afhenda foreldrum sínum miða með upplýsingum um hana. Ég mun svo hafa samband við foreldra á fimmtudaginn varðandi hversu mikið hver og einn hefur selt, hér fyrir neðan er svo það sem við erum að selja og allir sem hafa áhuga er velkomið að hafa samband við mig á isbud@simnet.is og láta mig vita hversu mikið magn af hverju viðkomandi vill fá.
Fjáröflun vegna æskulýðsstarfsins okkar
Hugsunin er sú hjá okkur að selja WC pappír og eldhúsrúllur til fjáröflunar til alls þess sem við ætlum að gera á næsta ári. Þannig hugsum við það að hvert heimili nái að selja að lágmarki 5 pakkningar af t.d WC- pappír og þar með værum við komin með nokkuð gott start upp í næsta ár. Einnig er hægt að bjóða hinar vörurnar sem eru hérna á listanum og að sjálfsögðu eru engin takmörk á því hversu mikið má selja.
Nú er bara að fara í það að hringja í ömmur og afa, frændur og frænkur eða jafnvel bara taka sig saman og ganga í hús. Flestir ættu að vera fegnir því að þetta er mun betra verð en allt sem sellt er í búðinni t.d myndu 8x8rl af klósett pappír sem kostar hjá okkur 4000.- kosta 5.600.- í búðinni.
Það verð sem við ætlum að selja vörurnar á er í töflunni hér undir.
Þetta fer því þannig fram að þið gangið í söfnunina núna strax eftir helgi og ég ætla að biðja ykkur að skila mér blöðunum eða ég hringi í ykkur sem ekki eruð á svæðinu fyrir fimmtudagskvöldið næsta þ.e. 27. nóv. Ég panta svo vörurnar sem munu þá sennilega koma á mánudeginum 1. des þið munið svo nálgast hjá mér vörurnar og koma þeim í réttar hendur og ég rukka ykkur um þann pening sem þið selduð fyrir litlu seinna.
Munið bara að skrifa niður hjá ykkur hver ætlar að fá hvað og hversu mikið viðkomandi ætlar að fá svo það fari nú ekki í neitt rugl.
Góða skemmtun kv. Vilborg s:867-1486
| Vörunr. |
Vöruheiti |
Verð með vsk |
| 401721 |
Lotus WC pappír, hvítur, 2-laga, 48 rl. |
3500 |
| N94489 |
Lotus WC pappír, 2-laga 225bl, 8x8rl. |
4000 |
| 400952 |
Lotus WC , hvítur lux, 3-laga, 30 rl. |
4000 |
| K11871 |
Lotus WC pappír Finesse, hvítur, 2-laga, 24 rl. |
2000 |
| 401949 |
Lotus Eldhúsrúllur, hvítar, 2-laga, 20 rl. |
2500 |
| 401220 |
Eldhúsrúllur áprentaðar - gæðavara 6 rl. |
1500 |
| 55511 |
RV - þvottaduft, 11kg fata - frábært verð. |
4500 |
| 60027 |
Persil þvottaduft, 8kg kassi.- hágæðavara. |
4500 |
| 0125-50009 |
Plastpokar svartir 75x125cm 10stk á rl. |
500 |
| 63240 |
Unique örtrefjamoppusett |
4000 |
| 63163 |
Örtrefja-diskaþurrka, blá 40x60, 2stk. |
1500 |
| 63162 |
Örtrefja-eldhúsklútur, grænn 40x40 |
1500 |
| 63160 |
Örtrefja-glermoppa, blá, 3stk. |
1000 |
| 63230 |
Örtrefja-hanski, blár, 3stk. |
2000 |
|
Umhverfisvænar pappírsvörur: |
|
| N94853 |
Lotus WC pappír S 2-laga, 400blöð 5x4rl. |
2500 |
| N32032 |
Lotus eldhúsrúllur S 90blöð, 5x4rl. |
4000 |