Jæja þá er skráningu á folaldasýninguna lokið, nú er bara að bíða spenntur eftir stóra deginum og sjá hver fer heim með gjafabréf fyrir folatollum og flottan bikar

í verðlaun fyrir fallegt folald.
Þetta verður frábært skemmtun og auðvitað er alltaf gaman að hitta aðra hestamenn og spá og spekúlera í stjörnum framtíðarinnar.
Maggi Ben lyfti grettistaki við undirbúning sýningarinnar og kunnum við öll honum bestu þakkir fyrir frábært framtak!!
Nú stendur yfir frumtamningarnámskeið í heshúsinu í Eyjarhólum þar sem er samankominn góður hópur af skemmtilegu fólki að nema fræði Magga Lár. Það er ótrúlegt hvað eitthvað eins sáraeinfalt og að láta hest ganga í kring um sig inni í stíu er í raun flókin framkvæmd

það er alveg á hreinu að þetta nýtist okkur nemendum alveg heilan helling og ekki eingöngu í tamningum því að allar þessar æfingar sem við erum að læra eru alveg bráðsniðugar fyrir uppáhalds reiðhestinn okkar líka.