22.10.2008 08:03
Já gott fólk nú verður fjör framundan.
Til stendur að halda Folaldasýningu fyrir félaga í Hmf Sindra.
Hún verður haldin í Skálakoti laugardaginn 22. nóvember. kl 13:00.
Eina sem þið þurfið að gera er að hafa samband við hann Magga Ben og skrá ykkur. Annað hvort á netfangið maggiben@gmail.com eða í síma 893-3600.
Nú skora ég á ykkur alla félaga sem eigið folöld að vera með og hafa gaman.
Folöldin verða dæmd og það verða verðlaun afhent.
þetta er auðvitað mest gert til skemmtunar en hver veit nema þið finnið drauma hestefnið ykkar þarna.
Svo má ég til svona í lokin að hrósa honum Magga Ben fyrir þetta framtak.. Því hann átti hugmyndina. Hann ætlar að framkvæma þetta og eina sem við hin þurfum að gera er að mæta á staðinn. Með folald/folöld ef þið eigið.
Hlakka til að sjá ykkur öll hress og kát.
Í Blá lokin minni ég á uppskeruhátíðina í Skálakoti 1. nóv kl 20.
Ps. mig vantar enn mynd af Hlyn og Draum og Ingibjörgu og Maístörnu.
Með félagskveðju úr snjónum í Vík.
Petra K. Kristinsdóttir
formaður