Halli hófs skal vera í samræmi við halla kjúkubeins.
Lengd hófsins skal vera eðlileg. Hófveggurinn má ekki vera lengri en 10mm niður fyrir hófbotn, mældur á tásvæði. Allar gervilengingar eru bannaðar.
Sé hestur járnaður er einungis heimilt að nota skeifur sem sérstaklega eru gerðar til þess að þjóna sem skeifur fyrir hesta. Allir fjórir fætur skulu þá vera járnaðir. Allar fjórar skeifur þurfa að vera úr sama efni. Eðlisþyngd efnisins má ekki vera meiri en venjulegs skeifnajárns. Skeifan má að hámarki vera 10.0 mm að þykkt og 23,0 mm á breidd og skulu vera jafnar að lögun. Eðlilegt slit er leyft.
Ákvörðun dómara um lögmæti skeifu á tilteknu móti er endanleg fyrir það tiltekna mót.
Skeifan má ekki fara fram fyrir eðlilega tálínu hófsins og að aftan ekki aftar en lóðrétt lína dregin niður af þófa/hæl.
Leyfðir eru tveir venjulegir skaflar á hverja skeifu, hnykktir, soðnir eða skrúfaðir, ein á hvorn hæl skeifunnar. Skafl má ekki vera stærri en: 15 x 15 x 12 mm (l x b x h) og má ekki vera festur með meira en 4 suðupunktum. Hafi skaflar brodd(karbít), má hann ekki ná meira en 3 mm niður fyrir skaflinn.
Leyfðir eru að hámarki þrír uppslættir, hver að hámarki 2 mm að þykkt á hverja skeifu. Ásoðnir uppslættir eru ekki leyfðir.
Ásuður og pottanir eru ekki leyfðar.
Nota má hringi úr leðri og gerviefni sem og botna, opna fleyga og fleygbotna. Flatir botnar og hringir skulu fylgja lögun skeifunnar, og mega vera að hámarki 5 mm þykkir. Opnir fleygar og fleygbotnar mega vera að hámarki 8 mm þykkir á hæl og að hámarki 2 mm í tá. Sé botn og/eða fyllingarefni notað má skeifa ekki vera þykkri en 8,0 mm. Með 10 mm skeifu má einungis nota hring (krans). Einungis er heimilt að nota einn hring eða botn eða fleyg á hvern fót. Styrkingar, sem stuðla að réttri virkni botnsins/hringsins eru leyfilegar.
Ákvörðun dómara um lögmæti botns,hrings eða fleygs á tilteknu móti er endanleg fyrir það tiltekna mót.
Þær skeifur, hringir eða botnar sem greinilega eru ekki framleiddir í þeim tilgangi að notast fyrir reiðhesta eru bannaðir.
Til viðbótar þessari almennu reglu heldur sportnefndin lista yfir skeifur, hringi og botna sem eru af sérstökum ástæðum ekki leyfðar. Listinn inniheldur lýsingu og mynd af viðkomandi skeifu, hring eða botni. Listinn er birtur á heimasíðu FEIF, www.feif.org og heimasíðu LH www.lhhestar.is.
Til að bæta ákveðinni skeifu, botni eða hring inn á lista yfir bannaðar skeifur, botna eða hringi, geta sportfulltrúar hvers lands, meðlimir íþróttanefndar FEIF og alþjóðlegir íþróttadómarar lagt fram tillögur til íþróttanefndar FEIF. Greinileg lýsing, skýr mynd og gildur rökstuðningur skal fylgja slíkri tillögu. Íþróttanefnd FEIF fer yfir slíkar tillögur að minnsta kosti þrisvar á ári, nema það sé sérstök ástæða til að taka ákvörðun með stuttum fyrirvara.
Árlegur fundur íþróttafulltrúa getur tekið ákvörðun um að taka skeifur, botna eða hringi út af lista yfir bannaðar skeifur, botna eða hringi.
Leyfðar eru hlífar, fyrir ofan hófbotn að hámarki 250 gr á hvern fót. Ekki má breyta hlífðarútbúnaði frá því að komið er inn á hringvöllinn þar til sýningu er lokið.
Ef hlíf fellur af í forkeppni skal knapinn ákveða hvort hann lýkur sýningu án hlífarinnar eða hættir keppni.
Hlíf sem fellur af á meðan á úrslitum stendur, má setja á aftur með leyfi dómara á meðan einkunnir eru lesnar upp á milli atriða eða á milli skeiðspretta í fimmgangi. Slitni hlíf á meðan á úrslitum stendur, má með leyfi dómara setja samskonar hlíf á aftur.
Þessar reglur gilda fyrir allt keppnissvæðið sem og allan tímann sem mót stendur.
Ekki má járna hest aftur, eftir að hann hefur hafið keppni í sinni fyrstu grein, nema með leyfi yfirdómara.
Skoðun á járningum og hlífum er á ábyrgð dómara. Ef ekki er um opinbera, kerfisbundna fótaskoðun að ræða skal gefa knöpum kost á að fá járningar og hlífar skoðaðar fyrir upphaf keppni. Á meðan á keppni stendur, geta starfsmenn vallarins skoðað reiðtygi um leið og hver hestur yfirgefur völl eftir að hafa lokið keppni. Ef ekki er um kerfisbundna skoðun að ræða, skal taka tilviljunarkennt úrtak úr ráslista og skoða hjá þeim. Þá skal einnig ávallt skoða einn af efstu þremur hestum í hverri keppnisgrein og skal dregið um hver þeirra kemur til skoðunar. Knapar skulu vera undir það búnir að draga undan hesti sínum, séu þeir dregnir út til fótaskoðunar.
Leiki minnsti vafi á því að mati dómara að reglur um járningar eða hlífar hafi verið brotnar, getur hvaða dómari sem er farið fram á sérstaka skoðun. Einn eða fleiri dómarar sem valdir hafa verið til þessara starfa, framkvæma skoðunina. Knapinn og dómarar geta farið fram á aðstoð mótsjárningamanns eða mótsdýralæknis. Dómararnir skera úr um hvort járning og/eða hlífar uppfylli reglugerð. Þeir geta farið fram á að skeifa sé fjarlægð og sett undir að nýju. Knapi hefur ekki rétt á að fara fram á bætur. Ef mótsjárningamaður fjarlægir skeifu skal kostnaður greiddur af mótshöldurum, annars er kostnaður á ábyrgð þess knapa sem í hlut á.
Á öllum mótum skal knapi upplýsa yfirdómara eða þann dómara sem sér um fótaskoðun um notkun botna. Gera skal lista yfir þau hross sem járnuð eru á botna. Hópur dómara skal draga út nokkra hesta af þessum lista. Draga skal undan þeim hrossum til skoðunar. Sé hestur sem dreginn er út til skoðunar járnaður á botna, skal fjarlægja botninn til skoðunar.
Venjulega skal ekki fjarlægja skeifur af sama hestinum oftar en einu sinni á sama móti. Hesta, sem hafa verið dregnir út eða teknir út til skoðunar, má járna aftur en aðeins undir eftirliti yfirdómara eða fulltrúa hans.
Knapinn sem í hlut á hefur engan rétt á að fara fram á bætur. Fari knapi ekki að fyrirmælum dómara verður hesturinn útilokaður frá allri þátttöku á viðkomandi móti.