Jæja allir, þá er komið að reiðskólum Sindra 2008 og eru þegar hafnar skráningar.
Reiðskólinn í Vík verður dagana 1. til 7. júní og svo verður reiðskólasýning þann 8. júní eftir námskeiðið, þar verður auðvitað glatt á hjalla, leikir, grill og gaman. Kennarar í Vík eru Vilborg Smáradóttir og Óskar Sigurður Þorsteinsson, auk þess að Björk Smára og Ásta Alda Árna verða óspart notaðar sem aðstoðarkennarar, nú svo eru auðvitað fleiri búnir að bjóða fram aðstoð sína, m.a. bakstur og bakkelsi í kennara og hnakkaherslur og fleira!

Við fáum hesthúsið hjá Hermanni eins og vanalega og yfir okkur rignir svo framboð gæðinga félagsmanna svo við erum alveg á grænni grein hérna í Víkinni.
Reiðskólinn í Skálakoti verður svo dagana 7. júní til 13. júní og þar verður reiðskólasýningin 14. júní. Kennarar þar eru Halldóra Gylfadóttir (Dóra í Eyjarhólum) og Anki (vinnukona í Skálakoti). Við fáum alla aðstöðu, reiðtygi og hesta hjá Mumma og erum ævinlega þakklát fyrir.
Verð á mann í reiðskólann er krónur 5.000.- en 4.500.- fyrir félagsmenn, auk þess er fjölskylduafsláttur sem reiknast á hvern auka mann í fjölskyldunni.
Skráning í Vík er hjá Vilborgu á e-mail
isbud@simnet.is eða síma 867-1486 og hjá Óskari í síma 866-1021, skráning þarf að berast fyrir miðvikudaginn 28. maí.
Skráning í Skálakot er svo hjá Dóru á e-mail
dorag@hive.is eða í síma 895-5738 og þarf skráning að hafa borist fyrir miðvikudaginn 4. júní.
Sjáums svo í reiðskólanum krakkar

Með kveðju Vilborg