jæja gott fólk.
Þá er komið að okkar árlegu Firmakeppni.
Hún verður haldin á
laugardaginn 12. apríl 2008 kl 14. Á Sindravelli. Skráning hefst klukkutíma fyrr. Einnig hægt að skrá sig á netfangið
solheimar2@simnet.is keppt verður í polla- barna- unglinga- kvenna- karla- og unghrossa flokki.
Ef við verðum svo óheppin að veðrið verði okkur óhagstætt. Þá mun ég tala við Mumma í Skálakoti um að fá að flytja okkur þangað. En sú ákvörðun verður tekin á laugardagsmorguninn...
Ef einhverjir vilja kaupa firma og eru ekki í Mýrdalnum eða Undir Eyjafjöllunum þá má líka hafa samband við mig í netfangið
solheimar2@simnet.is En sjáumst svo öll hress og kát á Laugardaginn.
með kveðju fyrir hönd Mótanefndar.
Petra Kristín Kristinsdóttir.